Játningin Ég er ekki búnað skrifa neitt lengi, síðan kom þetta rugl uppí hausinn á mér. Njótiði….
—————————————— ——–

Ég þarf að játa margt, ég þarf að gera það sem hugur minn hefur barist við síðan 74'. Ég ætla að koma fram undir réttu nafni og segja sögu mína. Ég hef ekki falið mig nógu vel að ég held. GayFinnah er ekki mitt rétta nafn, þetta er bara útlenska heitið, ég heiti Geirfinnur. Setjið R bakvið “Gay” og breytið Finnah í Finnur. Leggið saman 2 og 2 og ekki deila…..Veit ekki vað ég er að segja, jú ekki deila innbyrðis. En ég ætla að segja sögu mína og “hvarf” mitt.

Þetta var þannig að ég fór út eitt kvöldið og eins og þið vitið vann ég að hluta til við að smygla spíra til landsins. Þetta kvöld var ég frekar illa upplagður, þannig ég fór og náði í spíran en fór ekki með hann til tengiliðsins heldur keyrði útúr Keflavík og fór bakvið klett og drakk allt áfengið þangað til ég dó. En ég dó ekki alveg heldur bara áfengisdauða en þar sem þetta var alveg ótrúlega sterkt áfengi vaknaði ég ekkert, eða allavega ekki næstu árin.

Næst man ég að ég vaknaði ‘91 að ég held þá var búið að koma eldgos yfir mig og jarðsprungan kominn svo langt að þegar ég náði að bora mig upp var ég staddur í Texas.“Bölvaðir jarðskjálftar”. Þar sem innfæddum fannst svo erfitt að bera farm Geirfinnur og þeim fannst hippafötin mín frá 74’ og rónalegt útlit mitt svo samkynhneigt að ég byrjaði að kalla mig GayFinnah. En ég sór þess eið að komast heim fyrir lokun bónus. En þá gerðist atvik sem tafði för mína mikið, Officer Ole Gutteson , skiptinemi frá svíþjóð kynnti mig fyrir ircinu. Ég fór að hanga þar og lenti á cyber-huzle rásinni #AllwayzSvenning4Money. Ég festist þar í MÖRG ár.

Næst fatta ég þegar ég er á leiðinni til íslands á alþjóðlegt mót irc skáta. Ég var það langt leiddur að ég var búinn að gleyma Íslandinu góða. Ég sótti þá um vinnu í geimtíví á popptíví en var hafnað vegna samkynhneigðra lifnaðarhátta og skort á að sanna hvað ég héti. Þeir sögðust ekki ráða nafnlausa.

Ég Geirfinnur var ekki drepinn, ég hvarf ekki beinlínis heldur drap áfengið mig. Ég hef aldrei fengið vinnu eftir þetta og bannsett áfengið myrti mig.

Krakkar ekki smygla inn spýra!!!