Formáli:Ég hef aldrei skrifað svona sögur áður heldur bara einhverjar fáránlegar sögur með engum tilfinningum t.d. Kalli klósetthreinsari, Róbert ljóti(finnst á Sorp) og Doðrantur dópsali(finnst líka á Sorp).Þannig að ég bið fólk um að vera ekki með nein leiðindi þótt þessi saga mishepnnist illa.ÞAð verður bara að hafa það.Svo er klukkan 1:25….

Ég sit hérna og er að sturlast.Afhverju ég?
Afhverju getur þetta ekki verið einhver úti í bæ?
Þessi helvítis tæfa!!!Þetta hefði aldrei gerst ef hún hefði ekki tælt mig upp í rúm með sér!!!Fokk!!!!Hvað get ég gert.
Verð að hugsa mig út úr þessu.Það er ekki hægt!!Það er þessum helvítis læknum að kenna að það er ekki búið að finna upp lækningu við Eyðni….Ég er að hugsa um að elta uppi þessa tæfu og drepa hana.Hún hefði getaðsagt mér þetta!
Þá hefði ég sett á mig getnaðarvörn.Þessi tík.
Og þessir læknar!!Geta ekkert gert nema sett mig á einhvað Mækrómófólín eða einhvað.Það gerir ekkert helvítis gagn!!!
Öllum er drullusama um mig og ég dey bara sem einhver óþekktur gaur sem verður bara hent út í Vaglaskóg og látinn rotna þar.
Þetta er líka fjandans foreldrum mínum að kenna!Ef þau hefðu ekki útskúfað mér þegar ég var 17 ára hefði ég ekki verið svona lauslátur.Allt út af því að ég tók 3.000.000 útaf reikningnum hans pabba.Það er kannski mjög mikil synd en ekki ófyrirgefanleg.Og það er ekki þess virði að henda mér út úr lífi sínu, auralausum.Ég hefði átt að geyma peninginn í staðinn fyrir að eyða honum í vín og vændiskonur.FOKK!!!!!!
Ég hata allt og alla.Ég veit, ég elti þessa tík uppi og drep hana.Ég drep hana fyrst að ég dey hvort eð er eftir svona 7 ár, 30 ára að aldri.

3 dögum síðar:

Ég er búinn að finna það.Ég veit hvar hún á heima.Salka Björt Tómasdóttir,
Núpalind 7.
Ég er á leiðinni, ég hef ekki einu sinni efni á fjandans srætó.Helvítis manneskjur sem ég þarf að þekkja.Afhverju gat ég ekki alist upp aðeins betur innrættur.Of seint að hugsa um þann fjanda núna!!
Ég drep fokking tíkina.Svo verð ég að ræna frá henni, öllu verðmætu sem hún á.Hún býr ennþá hjá foreldrum, gott!
Þótt þeir séu þarna, það skiptir engu.Ég drep þá bara líka.
En langar mig að gera þetta?
Langar mig að láta þessa manneskju hverfa burt frá jörðinni alla ævi, langar mig að láta fjölskyldu hennar þjást það sem eftir er af lífi hennar?
Já mér er foking sama!!!!AAAAAAAAAARRRGGG!!!!Ég vil þetta ekki.Ég geri þetta samt.Eða ætti ég að leita sálfræðings, geðlæknis?
Djöfullinn!!!
Ég er alveg að koma.
Núpalind 1, 3, 5, 7, þarna er það.Þetta fallega, gula múrsteinahús.Hér býr ríkt fólk.
Ok, ég er búinn að dingla, það er komið að því.
Ég sé hana, hún opnar og ég reiði höggið af með þessu kúbeini sem var aleiga mín.
Já og hún liggur dauð fyrir framan mig í forstofunni.Best að hlaupa.
Og ég hleyp eins og ég get, eftir korter á stanslausu hlaupi er ég kominn að húsasundinu þar sem égbý.
Ég hef drepið helvítis merina.Og það ótrúlegasta er,að mér líður betur.Sú sem lét mig þjást svona nýtur þess ekki mikið núna.
Mér finnst þetta gaman, ég væri alveg til í að gera þetta aftur…En við hvern?
Ég veit…..Ekki við hvern.Heldur við hver.

2 vikum síðar:

Ég hef hvort sem er alltaf hatað þau.Stóra systir sem var alltaf einhvað að nuða í manni, svo foreldrar sem henda manni út út af peningum.Ég á ekki eftir að iðrast þess að gera þetta.
Jæja, búinn að dingla.
Bíddu, hvaða helvítis kall er þetta.Svona 4 árum eldri en ég.Er systir mín byrjuð með svona afstyrmum?
Svo er hann að spurja hvað ég vilji, með þessum tón.Ég lem hann í hausinn með kúbeininu og lem svo aftur og aftur og aftur þangað til að ég er viss um að hann er dauður.
Fokk, fjandans systirin heyrði píkuskrækina í honum.Ég sé hana, hún er alveg jafn falleg og venjulega.Synd að þurfa að drepa hana.Þessi hrædda tík.Fer að öskra af því hún sér mannin blóðugan á gólfinu.Ég hleyp að henni með kúbeinið á lofti og ber eins fast og ég get í hnakkan á henni.Hún er steindauð.Mamma og pabbi eru ekki heima.Ég var gáfaður að koma með tóma tösku því nú hef ég tíma til að stela því sem ég vil, svo bíð ég hér eftir pabba og mömmu.
Hérna er bara fjandans drasl!!!Andskotinn.Ég finn ekki helvítis skartgripaskápinn.Ég hef leitað bakvið öll málverk, í öllum skúffum og allt.
Þarna er lína í gólfinu, hugsanlega hleri.Já, ég er með fjandans skartgripina.Það er klukkutími þangað til þau koma.Ég hendi líkunum inn í ruslagám og hreinsa svo upp blóðið og hendi skúringamoppunni.Hentugt….þau koma eftir 10 mínútur og ég bíð bakvið eldhúsborðið þar sem þau venja sig á að koma alltaf.
Og ég bíð….10 mínútur…20…..30….40….klukkutími…2 klukkutímar.Djöfullinn ég nenni þessu ekki.Ég ætla að gá hvort það sé einhvað að éta hérna.
DJÖFULLINN!!!!Miði á ísskápnum!!!
“Förum út að borða hjá Tomma Sveins, ef þig vantar einhvað, þá geturðu hringt í síma 5528481”.
AAAAARG!! sökra ég og rústa öllu hérna með þessu kúbeini.Glerskápnum, postulínssettinu og öllu.
Djöfullinn, nágrannarnir eiga eftir að hringja á lögguna.Ég fer heim til þessa Tomma Sveins.Ég verð að taka áhættu.ég kíki í tölvuna hjá þeim.
Tómas Sveinsson, Tómas Sveinsson, DJÖFULLINN!!!
Tómas Sveinsson, Núpalind 7.Hvernig gat þetta gerst???Týpísk hegðun foreldra að vera hjá þessum snobbhænsnum.Þetta er 10 mínútna gangur….
Ég er kominn.Sama gamla húsið, og meira að segja ennþá finn ég rotnunarfíluna angandi hérna.Hún hefur greinilega legið þarna lengi.
Ég dingla.Vinalegur þybbinn maður kemur til dyra og spyr hvað hann getur gert fyrir mig.
Ég bið hann um að ná í Sindra Reynisson og Jóhönnu Þrastardóttir því ég þurfi að tala við þau.
Skömmu síðar koma þau, og horfa þessum fyrirlitningaaugum á mig.Þeim sömu og hvíldu á mér þegar ég var rekinn af heiman.
Ég bið þau um að koma út að tala aðeins við mig og það gera þau þrjóskulega.
Þá geri ég það sem ég var búinn að plana, kýli þau bæði í sama höggi í hausinn þannig að þau falla niður.Svo byrja ég að bomba þessu kúbeini í fjandans hausana áþ eim og ég heyri höfuðkúbuna mölvast.Ég held samt áfram þótt ég viti að þau sé dáin.Þá kemur þessi Tómas svo ég neyðist til að drepa hann líka.Það meiga ekki vera nein vitni.
Ég ber í áttina að honum en hann tekur í kúbeinið og rykkir.Þá ber ég hann með hinni höndini í andlitið þannig að hann missir takið á kúbeininu og hrasar aftur fyrir sig.Þá ber ég hann á fullu með kúbeininu þangað til ég veit hann er dauður.
Fokk!!!Löggan er komin.Ég verð að gera einhvað.Ég hleyp inn í húsið og loka hurðinni.Ég dreg líkið af kallinum, þessum Tómasi, með mér inn og þvæ það aðeins á örskammri stundu.Svo tek ég stól og fyrir tilvilhun er tape á borðinu síðan þau voru að teipa einhvern kassa í gær.Skiptir engu.Hann er teipaður eins og hann sé á lífi upp við stólinn.Ég kalla út að ég sé með gísl sem ég hiki ekki við að drepa.Svo kemur samningamaður.
Hann býður mér að fara í geðrannsókn og ef ég reynist geðveikur verð ég á hælinu við hámarks aðhlúun að eilífu, en ef ég sé ekki geðveikur sé það aðeins 35 ára fangelsi.
Hvers konar fífl heldur gaurinn að ég sé?Ég er enginn fjandans geðsjúklingur!Fjandinn hafi þennan helvítis samningamann.Ég verð svo reiður að ég kasta eldhúshnífum í áttina að honum, út um gluggann.Víkingasveitin er komin.Þetta getur ekki verið svo erfitt að skilja.Ég vil bara komast burt svo ég geti lifað frjáls og óáreittur það sem eftir er ævi minnar.Ég ætla ekki að drepa aftur.Djöfulsins fæðingarhálfvitar.Byrjaðir að skjóta.Til að sýna þeim viðvörun, ber ég einu sinni í gíslinn.Þeir hætta að skjóta.Það gerir gagn að hafa gísl, jafnvel þótt hann sé dauður.Djöfullinn!!!Einhver sálfræðingur er kominn og er að biðja um að fá að koma inn.Ég neita því auðvitað.En hún labbar samt áfram.Ég ber í búkinn á gíslinum.Sálfræðingurinn heldur áfram og ég ber gíslinn oft í hausinn þangað til að það er pottþétt að hann sé dauður að þeirra vitneskju.Þarna gerði ég mistök.Öll fokking víkingasveitin er komin.Ég hleyp upp og er kominn upp á þak.Það eru 2 kostir sem ég hef.Lifa lífinu í fangelsi eða stökkva og hverfa burt frá þessu helvíti.Helvíti getur ekki verið verri en þessi staður.Ég stekk.Þvílíkur sársauki.Ég er vaknaður.Ég er á sjúkrahúsi.Nú kemur einhver helvítis tæfa í hvítum slopp og segir mér að ég hafi fengið heilahristing við fallið og misst meðvitund, það séu 3 dagar síðan þetta gerðist.Ég er í helvítis öndunarvél og það er einhvað skurðdót við hliðina á mér.Þessi hjúkrunarkona segir mér að það eigi að skera mig upp.
Örsnöggt tek ég upp hnífinn þarna, virði hann fyrir mér í svona 3 millisekúntur, og sker mig á háls.Mér líður svo vel.Í þessum draumi.Þetta er allt betra.Þetta er besti heimur sem hægt er að hugsa sér.Mér finnst ég vera að synda í vatni eilífðarinnar.Og þótt ótrúlegt sé, þá stefni ég til himna.En ekki í rúllustiga eins og í teiknimyndunum.Heldur syndandi, kominn burt, kominn burt….
Ef þú átt eitthvað vantalað við mig….slepptu því að segja það.