Ég skrifaði þetta upprunalega fyrir hrútleiðinlegu síðuna mína, www.hvurslags.blogspot.com, en þar sem enginn vill fara þangað inn langaði mig til að birta þetta einnig hér.




Einu sinni fyrir langa löngu var lítið land sem hét Dnalsí land.
Íbúarnir þar voru allir ríkir, glaðir og hamingjusamir(enda trúðu allir á það að ríkidæmi færði þeim hamingju - sem og það gerði).
Reyndar voru ekki allir hamingjusamir - sem kom til vegna þess hvað þeir voru fátækari en hinir - þeir nefndust hraðskáld eða öryrkjar vegna þess hvað þeir ortu ört.


Þetta litla samfélag átti sér trúarstofnun er nefndist LR. Í litlu lagabókinni sem landið átti sér stóð að LR væri þjóðtrúin sem landsmenn tryðu á svo þeir gætu átt sér eitthvert haldreipi ef óþægilegar spurningar vöknuðu upp. Í mörghundruð ár hafði Dnalsí lifað við þessar einföldu reglur, og aldrei hafði komið til kastanna vandamál sem LR gæti ekki leyst.


En skyndilega breyttust tímarnir. Fólk frá öðrum miklu stærri og fjölmennari samfélögum fór að flytja inn í stórum stíl og truflaði Dnalsí fólkið. Því hafði liðið svo vel í sinni einföldu heimsmynd, en núna var komið nýtt fólk með nýjan lífsstíl, nýja matar- og fatarmenningu, nýtt tungumál og síðast en ekki síst: Nýja trú.
Það fór kliður um fólkið er það skrafaði sín á milli um þessa nýju íbúa. Það var stórundarlegt í háttum, vildi bara taka að sér störf sem enginn Dnalsí íbúi liti við nema í neyðarúrræðum. Það var óopinberlega orðið lágstéttarfólk sem talaði enga Dnalsísku, heldur eitthvað hrognamál sem ekki nokkurt kvikindi skildi bofs í.
Stjórnarmennirnir sem stjórnuðu litla landinu fóru 0að hafa áhyggjur. “Hvað ef þeir fara svo að iðka sína trú, sem stríðir á móti litlu lagabókinni okkar?” spurðu þeir. Þeir ákváðu því að stroka út nokkrar línur í bókinni, og skrifa í staðinn með blekpenna(því auðvitað mátti eki móðga nýja fólkið með því að setja lög sem vörðuðu það með blýanti) nýja klausu þar sem stóð að hver sem er mætti iðka sína trú.
Allir stjórnarmennirnir urðu glaðir aftur.


En þeim hafði yfisést lítillega. Þeir gleymdu að breyta annarri klausu þar sem stóð að LR trúin væri sú eina rétta trú, að hún skyldi vera styrkt af litla ríkissjóðnum þeirra, kennd og innrætt í barnaskólum (og reyndar langt fram eftir litla skólakerfinu á Dnalsí eyju) og að helstu hátíðsdagar LR trúnnar yrði sýnt á ríkisstyrkta sjónvarpinu þeirra svo að LR trúin héldi velli. Reyndar fór óskaplega lítið af Dnalsí íbúum í LR kirkju, en klerkarnir og biskupinn héldu LR trúnni í vitund fólks með því að koma sér í mjúkinn hjá sjónvarpsstöðvunum svo þeir gætu náð til fullt af fólki og minnt það á það að LR trúin væri enn sú eina rétta.


Núna byrjaði þetta nýja fólk að iðka trú sína af miklum móð, þar eð það stóð með blekpenna að það væri fullkomlega löglegt á Dnalsí eyju, en LR trúin hélt áfram að vera sú eina rétta samkvæmt litlu lagabók stjórnarmannanna. Þetta fólk sem kom frá stóru, stóru löndunum hélt líka áfram að tala sitt tungumál innanborðs, og krakkar frá þessum stóru, stóru löndum var útaf fyrir sig í sínum vinahópum. Fólkið sem kom frá þessum löndum skipti sér heldur ekkert af stjórnarmönnunum, um hver þeirra ætti að fá að ráða mest og hvort það ætti að fórna verðmætustu hlutum Dnalsí eyju fyrir gróða sem dygði síðan í mesta lagi 100 ár fram í tímann. Því fjölgaði og fjölgaði sífellt í landinu, trúarbrögðin sem það iðkaði urðu sífellt vinsæll og vinsælli, meðan LR trúnni hnignaði stöðugt og varð smám saman að innantómu prjáli.


En sjónvarpsstöðvarnar héldu samt áfram að sýna frá helstu atburðum og helgidögum LR trúnnar. Bara, svona, til þess að fólkið myndi ekki alveg gleyma því að LR var hin eina rétta trú;


og síðast en ekki síst af því það stóð einu sinni í litlu lagabókinni.



Nokkur tíðindi gerðust í janúarbyrjun um árið, sem átti sér stað nokkrum árum áður en kirkjustríðið geisaði.


Morgunn einn fékk Héraðsdómur Smoking Bay(en svo nefndist höfuðborg landsins) mál sem fjölluðu um nýja iðngrein sem hélt innreið sína í litla landið. Ákærandinn var fertug kona á sínum bestu árum, en sá ákærði var hátt í níræður milljónamæringur sem hafði hagnast verulega á þessari iðngrein sem atvinnurekandi. Eftir margra mánuða þvarg og rifrildi vann milljónamæringurinn naumlega í Héraðsdómi, og olli nokkrum usla hjá blaðamönnum Smoking Bay mitt í gúrkutíðinni.
Lýsing á starfseminni birtist í Borgunblaðinu, einu vinsælasta dagblaði þessa lands, og er það milljónamæringurinn sem svo segir frá í viðtali við blaðamann:
“Þessi iðngrein snýst í stórum dráttum um afþreyingu. Byggður er til tekinn klúbbur, með þar til gerðum innréttingum, útliti, lýsingu og þess háttar, og síðan eru ráðnar í starfið stúlkur, sem helst eiga að vera á sínum blómaárum, ef reksturinn á að ganga vel. Nú, ef stúlkurnar eru of ungar í starfið, dvelja þær í einka-þakíbúðinni minni í fagmannlegum þjálfunarbúðum. Hagkvæmast er að ráða stúlkur sem hafa þessa menntun fyrirfram, því oft er kostnaðarsamt að koma upp sér-námskeiði fyrir menntun sem þessa.
Það sem þessar stúlkur gera, í megindráttum, er að dansa listdans fyrir gesti, og halda þeim þannig á meðan uppteknum og drepa tímann fyrir viðskiptavinina. Að listdansinum loknum(tímabilið getur verið frá fimm mínútum upp í hálftíma) fara þær um áhorfendasvæðið og biðja um þjórfé(e. tips). Viðskiptavinunum er í sjálfsvald sett hve mikið þeir borga, en æskilegt er að það sé eitthvað sem auðvelt er að stinga inn á dömurnar á hina og þessa staði.”


Þessa saklausu iðkun sætti fimmtuga húsmóðirin sig ekki við, og er milljónamæringurinn aldni hugðist flytja til eyjunnar litlu hagkvæmustu tæki og tól til iðngreinar sem þessar, tók hún sig til og höfðaði mál á hendur honum. Aðal deilumálið í réttarsalnum var hvort stúlkurnar sem stunduðu iðjuna mættu vera erlendar, eða hvort einungis væri leyfilegt að nota fyrsta flokks arískar stúlkur. Að lokum komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að arísku stúlkurnar hefðu betri áhrif á atvinnulífið því þær þénuðu meira, svo ákveðið var að banna innflutning allra stúlkna sem ekki voru af hvítu kyni. Sökum þess hafa flestar dansmeyjanna komið frá Austur-Evrópu, bæði vegna lágra fluggjalda frá því svæði til Íslands, og vegna þess að einmitt þegar leitin stóð sem hæst að meyjum í störfin, voru janúarútsölur í Prag.
Fimmtuga konan sætti sig ekki við niðurstöðu Héraðsdóms, og ákvað að koma málinu alla leið. Með klókindum, svikum og hræsni sviðsetti hún og laug til um ýmiss konar starfsemi á þessum stöðum. Eftir hálfsmánaða undirbúning tóku að birtast fjarstæðukenndar teoríur á síðum dagblaðanna um vændisstarfsemi innan dyra dansklúbbanna. Með góðum lögfræðingi og styrkjum frá samtökunum “World peace 2000” tókst henni næstum því að vinna málið. En, Hæstiréttur Smoking Bay sá að sér á síðustu stundu, aðallega vegna ráðningu nýrrar borgarstýru sem var listhneigð mjög og gefin fyrir dansiðkun sem þessa, og úrskurðaði réttlætið konuna í þrefalt lífstíðarhald fyrir fjársvik frá “World peace 2000” og dauðadóm fyrir lygar og rógburð um starfsemi heiðvirðra staða þar sem háskólamenntað fólk(milljónamæringurinn var kvensjúkdómafræðingur) gengdi störfum sínum í fullkomnu sakleysi. Eða, eins og segir í skýrslu Hæstaréttar: “[4. Fyrir brot gegn 2., 3. og 4. mgr. 165. gr., svo og fyrir rógburð, lygar, prakkarastrik og önnur ofbeldisverk, sem framin eru í tengslum við brot á þessum ákvæðum, og enn fremur fyrir háttsemi sem alþjóðasamningur frá 23. september 1971…”


Eftirstöðvar þessa máls voru víðtækar. Almenningur skiptist í hnífjafnar fylkingar sem annað hvort stóðu með eða á móti konunni. Engum virtist standa á sama um hvort starfsemi þessa dansstaða yrði leyfð eða ekki, Velvakandi Borgunblaðsins var fullur af bréfum þar sem fólk annað hvort hrósaði Hæstarétti fyrir úrskurð sinn eða hallmælti honum. Evróvision söngkeppnin fór út um þúfur þegar þátttakendurnir fyrir hönd Íslands voru ásakaðir um listdans í atriði sínu, og páskagleðin týndist í allri ringulreiðinni. Að lokum ákváðu ráðamenn þjóðarinnar allir sem einn að eitthvað þyrfti að gera í málunum. Bandaríski herinn var kvaddur til að leysa katastrófuna og koma á reglu í þjóðfélaginu. Tugir herskipa, tundurspilla og hundruð þúsunda óbreyttra hermanna ruddust inn í landið og frystu allt sem kallast gat mótmæli.


Skoðanalögreglan stóð sig gríðarlega vel, efnahagur landsins tók stóran kipp upp á við í kjölfarið og skoðanaglæpir sáust varla. Þingmenn og formenn stjórnmálaflokkanna á Dnalsí eyju tóki gleði sína enn á ný, og vonuðu að herinn gæti aukið góðærið enn meira og fest það betur í sessi.



Hér birti ég bréfaskriftir á milli dyggs þjóðfélagsþegns á Dnalsí eyju, og fógeta þess lands, þar sem þeir ræða um fátækt þar í landi. Ég birti þetta til þess að sýna að svartir sauðir leynast víðast hvar, og hversu fáránlegar hugmyndir sumir ruglaðir menn sem kunna ekki að hlýða sinni ríkisstjórn geta haft um þjóðfélagið sitt.


——-


Smoking Bay, 32.janúar 2003


Elsku Fógeti.


Ástæða þess að ég sest nú við ritvélina og slæ inn fáein orð til þín, er grein sem birtist í Borgunblaðinu þann 15. janúar síðastliðinn. Greinarhöfundurinn, Ævar Eiður Pálsson, vakti upp hjá mér mikla reiði og angist er hann talaði heldur óvarlega um fátækt á Dnalsí eyju (þá sérstaklega í Smoking Bay) og ásakaði ráðamenn þjóðarinnar um að líta undan í flæmingi þegar fátækt væri minnst á þá, og þeir beðnir um að gera eitthvað í málinu. Eða, eins og segir í bréfi hans:
”Fátækt á Dnalsí eyju leynist víða. Áætla ég að um 0.01-0.1% þjóðarinnar sé undir fátæktarmörkum samkvæmt könnun sem samtök mín gerðu nú á dögunum. Til að bæta úr þessari fátækt eru, samvæmt mínum kokkabókum, best að stuðla að efnahagslegu frelsi, sem leiðir af sér lága skatta í kjölfarið fyrir atvinnulífið, stuðla þvínæst að auknum vaxtalækkunum, sem og lækka skatta á tekjur og eignir. Þær blindu aðferðir sem stjórnmálamenn á þessu skeri halda sér dauðahaldi í er að flytja pening frá einum aðila til annars. Ég hef marg oft sagt að það versta sem fólk getur lent í, er að fá borgað fyrir að gera ekki neitt, og tel ég að aðgerðir þessar sem ég mæli með eiga eftir að bæta efnahag Dnalsí eyju og útrýma fátækt…”

Þetta, herra fógeti, tel ég vera óforskammanlegt og að sjálfsögðu er ekkert vit í öðru en að draga þennan mann beinustu leið fyrir dómstól og láta réttlætið tala sínu máli. Hann hefur ásakanir í garð dnalsískra valdamanna um að stjórna landinu sínu ekki nógu vel og hlaupast undan merkjum þegar þessi hroðalegu samtök kalla á aðgerðir til að útrýma þessari svokallaðri “fátækt”, sem samkvæmt honum á að loða við landið eins og illvígur kynsjúkdómur. Ég get talað af eigin reynslu, að þeir fátæklingar sem ég vinn með á blindravinnustofunni, eru allir upp til hópa letingjar sem gætu þénað mun meira ef þeir nenntu því. Mál þetta er hin mesta fásinna, og ég skil ekki af hverju maðurinn hefur ekki fyrir löngu farið í geðlæknisrannsókn, eða dæmdur til dauða af skoðanalögreglunni fyrir svona nasískar hugmyndir.
Með vinsemd og virðingu
Magnús Halldórsson



Smoking Bay, 12 febrúar 2003


Kæri Magnús.


Mér brá við er ég las tilvitnun þína í grein Ævars Eiðs, þessi maður er ekki heill á geði. Til að bregðast við fleiri mönnum sem þessum(ef þeir þá leynast einhvers staðar í þjóðfélaginu) höfum við eflt skoðanalögregluflotann um 30%, rýmkað til reglur um vopnaburð lögreglumanna, endurskoðað lög um húsleitarheimildir og fleira. Vonandi höfum við hendur í hári honum, sem og meðlima í þessum samtökum hans
Bestu kveðjur
Fógeti



Smoking Bay, 18 febrúar 2003


Sæll aftur elsku Fógeti, og þakka þér fyrir bréfið.


Ég átti munnlegt samtal við Ævar Eið núna fyrr í vikunni, og um leið og ég sá þennan mann tók ég strax eftir þeirri hugarangist og tilvistarkreppu er einkennir huga hans. Hann talar í ranghugmyndum, fordómar einkenna hvern hlut sem hann gerir og ég undrast á því af hverju það er ekki búið að loka þennan mann inni á hæli. Ég komst að heimilisfangi hans, Æsuströnd 23, og þætti mér vænt um ef þið handtækjuð hann og kæmuð vitinu fyrir hann eins fljótt og þið getið.
Kveðja
Magnús



Smoking Bay 21 febrúar 2003


Kæri Magnús


Það er satt sem þú segir, að “fátæklingar” á Dnalsí eyju séu annað hvort sveitaómagar eða eintómir letingjar sem hafi alist upp við ofdekur eða gengið í einkaskóla sem hefur upprætt í þeim eintóma leti og enga menntun.
Við bönkuðum upp á hjá Ævari Eiði, og ráðleggingar þínar hafa komið skoðanalögreglunni að ómetanlegu gagni, því svo virðist sem þessi maður sé hluti af öðru og stærra hugsananeti þjóðfélagsþegna er vilja útrýma fátækt með öllum ráðum, löglegum eður ei. Eftir nokkurra stunda yfirheyrslu og klókar aðgerðir lögreglunnar, brotnaði hann endanlega niður og sagði frá öllu sem hann vissi um samtök þessi. Þau nefnast “Samtök gegn fátækt á Dnalsí eyju”, og virðast stunda skipulagða starfsemi sem byggist á því að lauma inn til ráðamanna þjóðarinnar lymskulegum, vinstrisinnuðum og verkalýðs-ættuðum bellibrögðum sem eiga að minnka þessa “fátækt” í Dnalsí landi. Við teljum að meðlimir samtaka þessa séu undir áhrifum erlendrar mafíu sem hyggst sölsa undir sig völd hér á landi. Þess vegna er það okkur mikilvæg hönd í bagga að hafa þig sem ráðgjafa og uppljóstrara sem kemur í veg fyrir hvers kyns vesen og vitleysu.
Kærar þakkir fyrir bréfin, og þú manst vonandi eftir að kjósa mig í byrjun nýs kjörtímabils.
Kveðja
Fógeti



Hér lýkur bréfaskriftunum. Ævar Eiður var dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir ásakanir þessar, en vegna ákafra mótmæla gegn úrskurði Héraðsdóms var refsingin þyngd í 10 ár. Húsnæðið sem samtökin notuðu undir starfsemi sína, var tæmt og innréttingar þess brenndar, en voru síðar endurnýjaðar og notaðar undir ný samtök, sem nefndust “Samtök gegn fátækum á Dnalsí eyju”, sem störfuðu við miklar vinsældir.


Enn á ný hefur öllu verið bjargað í Dnalsí landi.



Komið þið sæl.

Ég heiti Da Víðoddson, sonur Víðodds sonur Meyfróðs sonur Ágústafs. Ég veit ekki almennilega af hverju ég er að skrifa hérna á þessa síðu, ég veit ekki einu sinni hver kom henni upp, eða hverjum datt í hug þessi asnalega slóð á hana. Stundum finnst mér samt eins og ég viti svo mikið, enda er ég fógeti í mínu landi. Í þessu bréfi ætla ég aðeins að segja frá lífi mínu, og, ef tími vinnst til nöldra í einhverju.

Samkvæmt vestrænu kapitalísku lífi á mér að líða vel, ef marka má empirískar eignir mínar. Ég bý í stóru húsi í einu af bestu hverfum landsins, fjölskyldulífið er eins og best verður á kosið, bíllinn minn er alltaf vel bónaður á sunnudögum (þó ekki sé það ég sjálfur sem bóna hann) og ég er næstum því búinn að borga upp sumarbústaðinn sem við fjölskyldan keyptum á okurlánum þegar góðærið stóð sem hæst. Ég stunda reglulega líkamsrækt, slappa endrum og eins af með vinum mínum og þá förum við gjarnan í allar fínu veislurnar sem birtast svo daginn eftir á síðum Méð og meyrts. (Eini gallinn við þær veislur er að kampavínið sem er í glösunum sem við þurfum alltaf að halda á er svo hryllilega vont. Hvenær ætlar dnalsíska þjóðin að koma sér upp almennilegri vínmenningu?!)

Flestir þeir sem lesa þessar línur undrast væntanlega á vanlíðan minni. “Hvað er þessi maður að hugsa,” segja þeir, “þessi maður fær allt sem hann vill miðað við eignir og völd sín, samkvæmt mínu jarðbundnu og tiltölulega einföldu lífi ætti mér að líka fullkomlega.” Þeir menn geta bara litið á sig sem algera dóna við mig, en mér er líka alveg sama. Málið er, að hinar spíritísku eignir mínar eru ekki alveg fullkomnar. Stundum finnst mér eins og það sé eitthvað tómarúm í andlegu líðan minni, mér finnst ég vera tilbúin strengjabrúða í tilbúnum heimi þar sem allt er skipulagt frá grunni og hver aðgerð, hvert orð og hvert skúmaskot hverrar persónu er sett undir linsu smásjárinnar. Örlög mín eru ráðin fyrirfram, það er einhver persóna þarna úti sem veit nákvæmlega hvenær ég dey, hvenær ég hætti fógetastarfi mínu eða hvort ég muni deyja á sóttarsæng eða í slysförum. Líðan mín hefur beðið hnekki þessa vegna, ég tek t.d. aldrei strætisvagn af ótta við að einhver sjái hvers konar almúga-samgöngur ég nota mér, ég hef aldrei séð betlara né farið á veraldarvefinn. Af hverju getur dnalsíska þjóðin sætt sig við það að ég er fógeti, ég er sá sem ræð hlutunum? Af hverju getur það ekki haft málin eins og ég vil? Það þurfa alltaf að koma einhverjir nöldrarar sem gagnrýna mig rétt eins og þeir væru mamma mín, og það vekur mér enn þá furðu að eftir að ég birti smásagnasafn mitt jókst fylgi þeirra um rúmlega 5%, sem er að sjálfsögðu fimm prósentum of mikið. Það verður að gera eitthvað í málinu, verður að gera eitthvað í málinu.

Nóg komið af kerlingalegu nöldri. Nú er ég kominn í stuð og þarf nauðsynlega að drulla yfir einhvern. Málið er bara, að eftir að skoðanalögreglan komst á legginn hefur enginn þorað að láta skoðanir sínar í ljós, sem er að vissu leyti ágætt, en þegar maður er eins og kona á breytingaskeiðinu með króníska túrverki getur stundum verið gott að fá að æsa sig smávegis. Til hvers ætti ég annars að koma sífellt fram í viðtölum dnalsíska sjónvarpsins þar sem ég tjái skoðanir mínar á hinu og þessu(og jafnvel hella mér yfir einhvern ef ég er í stuði þá dagana)? Samtök gegn fátækt á Dnalsí eyju, sá eða þeir sem stofnuðu þessa heimskulegu síðu, Hössur og Dnalsíska þjóðin í heild sinni eru bara dónar! Algerir dónar!

Já og hættið að nöldra út í að ég sé partur af dnalsísku þjóðinni, annars læt ég skoðanalögregluna loka ykkur inni!