Þetta er fysta smásagan sem ég sendi inn á huga. Njótið!
Þegar ég loksins hef kraft til að snúa við höfðinu sé ég hvar hún liggur við hliðina á mér þessi gyðja sem ég var að enda við að uppfylla alla mína drauma sem ég hafði haft um hana síðan ég byrjaði í þessum menntaskóla.
Það eru 2 ár síðan ég byrjaði í þessum skóla, sem ég er reyndar ekki lengur í. Ég væri á þriðja ári ef að ekki hefði komið til hljómsveitin mín og það að við “meikuðum” það.
En þá væri ég heldur ekki í þessu rúmi með þessa gyðju við hliðina á mér. Ég var ekki hátt á vinsældarlistanum hjá henni þá (þegar ég var í skólanum), hún leit mig hornauga og fannst ég vera viðbjóðslegur í þau fáum skipti sem ég kom eitthvað nálægt henni. Það sem hún vissi ekki að ég var á fullu í hljómsveit og allur minn aukatíma fór í það að æfa með henni og semja en ekki gera mig fallegan eins og allir aðrir stelpustrákar gera. Hún vissi til dæmis ekki að sumir textarnir voru um hana, og hún veit það ekki ennþá.
Svo gerist það í vor að við sendum demó í skífuna og fáum strax samning, við fórum í stúdíó og tókum upp plötu sem gekk svo vel að það er lygasögu líkast, reyndar er þetta allt saman lygasögu líkast. Þegar við héldum útgáfutónleikana var einhver útlenskur tónlistarmóngúli og hann var svo hrifinn af okkur að við skrifuðum undir hjá útgáfunni hans.
Ég vill nefnilega ekki vera svona píkupoppari hér heima á íslandi spillandi á böllum helgi eftir helgi, heldur vill ég halda almennilega tónleika og spila rokk. Við þurftum að hætta í skólanum til að fara að spila.
Við ákváðum samt að spila einu sinni á balli hérna í skólanum og eftir það gerðist það sem ég hef látið mig dreyma um lengi hún kom til mín, eitt leyddi að öðru og hér erum við núna, hlið við hlið í rúminu hún heldur utan um mig og leggur höfuðið á bringuna á mér. Þvílíkur líkami, ég veit þó að hún er aðeins að þessu vegna þess að ég er kannski að verða frægur og ríkur, þó að hún hafi haldið þessa ræðu í nótt að hún hefði alltaf verið hrifinn af mér og vildi vera með mér þá veit ég að hún meinar þetta ekki.
Hvern fjandan er ég samt að gera hér, það gerir mig ekkert að betri manni að ég sofi hjá henni bara af því að mig hefur langað til þess. Nei það gengur ekki ég ætla að segja henni það strax að þetta gangi ekki.
“viltu að ég totti þig” segir hún lostalega þar sem hún liggur fyrir neðan mig og horfir á mig saklausum bláum augum.
En samt af hverju ekki, afhverju geri ég bara ekki það sem hún ætlar að gera við mig, hún ætlar að njóta þess að vera með mér, peningana skiljiði og frægðarinnar. Af hverju held ég bara ekki áfram að sofa hjá henni of láta hana gefa mér, ég ætla ekki að gefa neitt af mér en njóta alls þess sem hún gefur mér. Þá er ég búinn að hefna mín fyrir öll þau skipti sem hún gerði lítið úr mér.
“já viltu gera það” segi ég og ýti henni niður brosandi. Þetta á eftir að verða rosalegur tími.