Þá er skólinn byrjaður hjá einhverjum og hinir byrja seinna í vikunni. Er þetta ekki bara að leggjast vel í fólk? Mér fannst nú voða gott að koma aftur í skólann í morgun, hitta fólkið sem maður hafði ekki hitt í allt sumar, væla yfir lélegu kennurunum sem maður fékk og hrósa happi yfir þeim góðu, prufa stundatöfluna en aðallega chilla á borðinu af því að fyrstu tímarnir eru yfirleitt grín.

Góður dagur hjá mér.