Ég legg hér með til að hugi.is/skatar standi fyrir ljósmyndakeppni um bestu þematengdu skátamyndina. Ég veit ekki hvort þessi hugmynd hefur komið upp áður enda hef ég verið óvirk á huga lengi.

Það má skoða framkvæmd ljósmyndakeppnanna á ljósmyndaáhugamálinu og hafa svipaða keppni.

Þemu gætu til dæmis verið eftirfarandi:

Skáti er tillitsamur
Búningurinn
Rekkjaskátarómantík
Ó, stælti skáti
Alþjóðaskátun
IngaAusa
Aldarafmæli skátahreyfingarinnar

Ef þið hafið áhuga skal ég athuga hvort ekki sé hægt að redda einhverjum vinningum.