Jæja í framhaldi af korkinum sem Desmond skrifaði langar mig til þess að skella smá áskorun á stjórnendur (virka stjórnendur) að finna út úr því hvort að það sé ekki hægt að skipta þessum sem hættir eru að sinna skyldum sínum sem stjórnendum fyrir einhverja nýja sem hafa áhuga á því.

Auk þess myndi mér þykja vænt um að fá svar við spurninguni sem ég spurði í framhaldi af korknum hans Desmonds, hvað fellst í því að vera stjórnandi, hvaða kröfur og skilyrði eru fyrir því að verða stjórnandi? Svo þeir sem hafa áhuga geti boðið sig fram.

Svo ef Scrooge og Dagfari treysta sér til þess að sinna þessu hlutverki einir þá finnst mér allavega að það eigi að fjarlægja hina stjórnendurnar þannig að ef maður hefði áhuga á því að hafa samband við stjórnanda þá myndi maður ekki lenda í því að hafa samband við einhvern sem kemur ekki in fyrr en eftir hálft ár.

Ottó Ingi
Skf. Hama