Sæll öll

Ég er mikið að velta einu fyrir mér. Er ekkert að gerast í félögunum í landinu. Engin í útilega eða yfirleitt að gera eitthvað sniðugt. Alla vega er nógu lítið skrifað inn á þennan vef okkar. Það eru nú ekki margar sveitarútilegurnar eða félagsútilegurnar, sem fólk er að fara í. Eða vill fólk kannski ekki deila því með öðrum, hvað er gaman í útilegu.

Hvernig væri nú að fara að sýna það hvað við erum að gera, segja frá því.

Eitt í viðbót. Afhverju setur fólk það ekki í atburði hvað er að gerast í félögunum hjá þeim.

Smá vangaveltur. Alla vega hljóta margir að vera að gera eitthvað skemmtilegt um helgina.

Ég er alla vega að skátast !!!!!!!!!!!!!!!!!