Björgunarsveitin tekur þátt í æfingu sem stendur nú yfir með skyndihjálparbúnaðinn ásamt mannskap og bílum.
Um er að ræða skrifborðsæfingu og gert er ráð fyrir að kviknað hafi í skemmtiferðaskipinu Nordic Dream utan við Ísafjarðardjúp.
Á skipinu eru 1000 farþegar og 700 manna áhöfn. Mikill fjöldi fólks um borð er slasað eða látið og eldar loga frá sjólínu upp á 8. hæð.
Vettvangs- og aðgerðastjórn á Ísfirði taka þátt í æfingunni auk Samhæfingarstöðvarinnar í Skógarhlíð sem er fullmönnuð.
Vegna fjölda slasaðra koma bjargir víða að og meðal annars er gert ráð fyrir að mikill fjöldi slasaðra yrði sendur erlendis kæmi til svo stórs slyss og er það meðal þess sem æft er á æfingunni.

Áætlað er að u.þ.b. 60-70 manns færu frá suðurnesjum á fyrsta klukkutímanum með flugi ef svona óhapp yrði.