Sko!
Ég er ekki viss hvort að ég egi að senda þetta í korka eða greinar. Veit ekki hvursu mikil áhrif þetta hefur á korknum. En þið adminar skellið þessu bara þangað ef að þetta á ekki heima í grein :)
En það sem að ég vildi sagt hafa var það að mér finnst allt of mikið skítkast vera hérna á milli skáta.
Þótt að okkur líki kanski ekki eithver áhveðin félög þá eigum við ekki að vera að drulla yfir þau á svona opinberu spjalli! Taliði bara um það ykkar á milli. Ég skrifa þetta vegna þess að ég var að lesa á korkonum og það var eithver sem spurði hvaða skátafélag finst ykkur með asnalegasta nafnið… og það kom eithver með Eina og svo kom Ægisbúar… Hm… persónuni fannst þetta asnalegasta nafnið vegna þess að hann/hún hafði ekki góða reynslu af þeim síðan á landsmóti… En þetta var kanski ekki allveg rétt svar… Ægisbúar… er ekkert asnalegt NAFN… annaðhvert félag á íslandi heitir eithvað búar og hvað er asnalegt að vera ÆGIS-búi frekar en HEIÐAR-búi eða VOGA-búi… Eru þetta ekki bara fordómar beint til félagsins?
Ég er allavega mjög hneiksluð og skil ekki afhverju fólk hugsar ekki áður en það svarar korkunum á þessu áhugamáli…
Þið eruð stundum farin að hljóma eins og fólkið sem að er ekki í skátum og finnst við svo hallærinsleg en veit samt ekkert hvað það er að tala um…
Stundum má allveg halda skoðunum sínum fyrir sig og vini sína. Ég meina þótt að ég sé ekki Ægisbúi þá finnst mér allveg að fólk megi halda skoðunum sínum fyrir sig.!
Takk Takk.
Kittý - sem er strókur í húð og hár og dettur ekki í hug að drulla yfir önnur félög!!
smælaðu framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.