Guðmundur Kjartansson unglingameistari Íslands

Guðmundur Kjartansson varð í dag Unglingameistari Íslands í skák þegar hann sigraði í aukakeppni um titilinn. Þrír skákmenn urðu jafnir í Unglingaflokki í áskorendaflokki á Skákþingi Íslands sem fram fór um páskana, Guðmundur Kjartansson, Hilmar Þorsteinsson og Aron Ingi Óskarsson. Þeir tefldu til úrslita tvöfalda umferð. Guðmundur hafði sigur eftir harða keppni við Hilmar.

Úrslit:

Guðmundur 3 vinn. af 4
Hilmar 3 vinn.
Aron Ingi 0

Tefldu Guðmundur og Hilmar þá til úrslita og sigraði Guðmundur eftir bráðabana 2-1.


tekið af strik.is
Moo. Moo. Moo.