Jæja, Það er orðið svolítið langt síðan að ég fór í the sims leikinn en reyndar þá fór ég í hann í svona 20 mín. í gær og það var nú alveg ágætt. En þegar að ég fer í the sims þá vel ég yfirleitt miðbrúnan lit á fólkið og svo vel ég svipuð föt og í fyrra skiptið þannig að yfirleitt þá verð ég eiginlega alltaf að gera smá hlé eftir að ég er búinn að spila the sims í svona nokkra daga í röð annars fæ ég eiginlega alltaf bara leið á honum í smá tíma, en svo eftir það þá get ég bara ekki hætt að spila leikinn.
En ég veit nú ekki alveg hvort að ég ætla að kaupa nýja viðbótarpakkann þegar að hann kemur út af því að þá verð ég örrugglega búin að eiða meira en tuttugu þúsund kr. í the sims þannig að ég veit ekki hvort að ég kaupi mér hann en mig langar rosalega í hann.

See you later,
aligator.