Í fyrsta lagi ætliði að sjá eitthvað marga trailera fyrir myndina eða ætliði að bara að sjá hana í öllu sínu veldi. Ég er sjálfur búinn að sjá einn trailer en ég er að spá í að sleppa öllum öðrum, las á einum stað dálítið góða hugmynd: Sleppa öllum trailerum og þá veit maður ekkert hvernig myndin er og þá verður hún bara þeim mun flottari.

Síðan er það seinna. Hafiði pælt í því að Anakin og Queen Amidala eiga að vera foreldrar Luke Skywalkers. Ég er aðalega að hugsa út í það, þegar hann er eitthvað um 10 ára þá er hún greinilega um 20 ára eða eldri. Síðan í þessum eina trailer sem ég er búinn að sjá, þá var eins og hann hefði elst um eitthver tíu ár en hún hafði ekki elst neitt. Hafiði séð þennan trailer?? Ég sá mynd af Anakin á þessu áhugmáli. Ef þið munduð sjá síðan mynd af Queen Amidala þá munduði ábyggilega sjá að hún er alveg eins og í síðustu mynd.

Ah, ég er bara að pæla í þessu. Væruði að til að segja mér hvað ykkur finnst um þetta.