loksins næ ég að horfa á granna :)
Ég misti aðeins af byrjuninni en þetta er það sem ég sá:

Bianca kom heim til Michelle og sagðist hafa fengið leyfi frá mömmu sinni. Svo hringir mamma hennar í Michelle og spyr hana um Biöncu og Shell segist ekkert vita um hana.

Tad er að vinna hjá Joe í byggingarvinnuni og er hættur í skólanum. Það var víst eitthvað plott sem Harold gerði, Hann varað reynað sýna Tad að ef hann myndi klára nám þá gæti hann valið úr vinnum í stað þess að vera sona illa menntaður og þurfa að vinna svona vinnu.
Tad finnst bara svo gaman þarna í vinnuni og Joe er jögánægður með hans störf þar. Svo Joe býður honum að taka hann í læri. Tad þyggur það. Mardge og Harold til lítillar skemmtunar.

Bianca er að taka myndaf Shell og er að bakka (mjög típíst) og dettur ofan í holu/göng og brákar sig á hæli.
á sama tíma kemur Mamma hennar Biöncu til Scully folksins og byrjar að hella sér yfir Joe.. Spurja hann hvar dóttir sín sé og eitthvað.. Joe veit bara ekkert um hvað hún er að tala. Shell hleypur inn og kallar á pabba sinn segir honum að drífa sig því Bianca sé meitt..
Þau drífa sig öll þangað og Joe nær í Biöncu þarna niður. Samt sem áður verður Mamma hennar Biöncu ennþá reið og segir við Joe að þetta sé sko ekki búið…

(Woody er sakaður um eitthvað og Lou er að vara Steph við honum)
Stanno fer til Steph og er að reyna að segja henni að Woody hafi breyst í fangelsinu og hann sé að plana eitthvað stórt gegn mannkyninu þegar hann losni út.. Steph verður bara reið og vill ekkert hlusta á hann..

Darcy sendir Dee blómvönd.. með korti “Fyrirgefðu að ég gat ekki kvatt þig.. Darcy” hún verður rosalega ánægð..

Jæja þetta var bara hratt farið yfir.. ef eitthvað vantar þá endilega bætið inní og endilega rifjið upp það sem gerðist áður..
Hvað gerði Woody?
Afhverju mátti Bianca ekki vera hjá Shell?
og þess háttar.
Endilega segið mér :)