Jæja hvað er málið!!! Hún veit að hann er hrifin af sér en hann þorir ekki að vera með henni bæði vegna aldursmunar og geðsjúka pabbans…en samt ætlar hún sér að fá hann!! Eins svo í þættinum í dag…Joel ætlaði að taka Lyn með sér út að hlaupa og audda skellir Flick sér með og hleypur eins og brjálæðingur alveg langt á undan öllum svo að Joel haldi örugglega að hún sé í formi!! Svo eins og allir vita sem hafa horft á þættina í vikunni þá er Joel að fara að kenna köfun á einhverju námskeiði….svo þegar námskeiðið byrjar…hver kemur hlaupandi til að skrá sig??…auðvitað Flick!! Svo þegar hann segir að þetta gangi alls ekkert upp þá segist hún ætla að láta þetta ganga….hún er algjör snillingur…og gefst sko ekki upp þó á móti blási:) þetta er rétti andinn!:) Ég veit svo sem alveg hvernig þetta endar hjá þeim eins og örugglega margir aðrir en ég vill ekki vera “spoiler”:) Þau yrðu ekkert smá sæt saman…á ekki aldur að vera afstæður þegar við kemur ástinni?..og Joe myndi örugglega jafna sig (vonandi) Það er allavegana ekkert smá gaman að fylgjast með henni að reyna að ná honum yfir á sitt band:):) ég segi bara áfram Flick:):)!!