Gamall þáttur Ég var svo heppin að komast yfir einn eldgamlan þátt að grönnum í gær. Þar sést bara hvað allt hefur breyst!
Þetta var þátturinn þegar Phil, Julie og Hannah voru að flytja inn til Helen sem var handleggsbrotin at the time… Hannah voða lítil og saklaus og Debbie í grunnskólanum
Danni (Stark) faldi sígarettur í skáp hjá strák sem hún þoldi ekki.. En það var auðvitað vinkona hennar sem hafði slæm áhrif á hana sem fékk hana til að gera þetta…
Þarna var Lou bara ungur og ekki til hrukka á honum, Lolly ekki fædd og engin bjó í sama húsinu.. Nema sennilegast Kennedy fjölskyldan.. Þau bara komu ekkert í þessum þætti…
Þarna voru samt sömu skólabúningarnir á stelpurnar en strákarnir voru þarna í svörtum buxum…

En þarna sá ég nú nokkuð vel hvað grannar eru orðnir miklu betri núna ;)