Dione kemur inn í Neighbours sem kærastan hans Joels. Reyndar vooru kynni þeirra mjög flókin. Toadie og Joel far inn á klúbb þar sem ríka fólkið skemmtir sér oftast. Þeir fara með því hugafari að næla sér í einhverjar ríkar glæsipíur. Þeir koma fljótt auga á Dione og vinkonu hennar. Þeir fara að tala við þær og Toadie er fljótur að ljúga því að Joel sé moldríkur Argentískur fótboltamaður sem kynni ekki mikið í ensku og að hann sé umboðsmaðurinn hans. Lygarnar verða meiriog meira og brátt verður þetta ein stór lyga súpa. En stelpurnar komust að hinu sanna þegar Geri Hallet sagði þeim allt hið rétta þegar hún yfirheyrðist samtal stúlknanna. Hún fékk þær til þess aað leika á drengina og þær fengu þá til þess að bjóða sér á dýrasta veitnigarhúsið á bænum. Þar pöntuðu þær sér dýrustu réttina og létu þá sitja í súpunni með himin háan reiknig sem þeir höfðu engan veginn efni á að borga. Joel fékk Dione til þess að hitta sig aftur og nú ætluðu þau að byggja sambandið á algjörum sannleika. Eftir það hefur Dione komið meira og meira við sögu. Ég væri ekki hissa á því þó að einhvern daginn myndi hún flytja í götuna jafnvel þó að Joel og hún eigi kannski ekki etir að enda endanlega saman.
Dione er leikin af Madeleine West. Hún var mjög stressuð fyrsta daginn sinn á upptöku og mætti miklu fyrr en allir aðrir og faldi sig þegar hún sá einhvern af þeim sem voru fastráðnir á þættinum. Upphaflega átti hún einungis að vera í 11 vikur en svo hefur það greinilega breyst, enda líka frábær karakter.