Þátturinn í dag (12.09.01) Ég held að samband Steph og Drew sé komið á ansi hálan ís! Steph er alveg að deyja úr ást yfir hinum sjarmerandi Drew sínum og núna í þættinum í dag þá sammþykkti hún að fara með honum útá land eða niðrá strönd þar sem þau áttu bæði nokkra daga í frí.
Ég er alveg fullviss um það að þar eigi eitthvað eftir að gerast, Hún á ekki eftir að geta höndlað sig þarna.. Þau ein á ströndinni í glampandi tunglsljósinu.. það verður valla rómantískara fyrir tvær einmanna sálar.
En hann Toadie sér nú hvert þetta er að stefna og hann veit jú hug Steph svo það er spurning hvort hann nái að stöðva þetta áður en þetta fer eitthvað lengra.

Svo er allt að benda til þess að Hann Tad fái ekki borgað hjá þessari Doulu eða hvað sem hún heitir..

Og Tess og David eru bara að verða nánari og nánari. Þar sem Tess tók ramman með myndinni af Brendan og ætlaði að setja hana á minna áberandi stað þá held ég að allt sé að benda til þess að þaug eigi eitthvað eftir að vera að dingla sér saman. Hún á það´nú líka skilið vesalings manneskjan.. Líka það að þau passa svo vel saman.. Hún hætti öllu svona tilgangslausu væli eftir að Brendan dó!