Hafið þið ekki áhuga á að stofna aðdáendaklúbb fyrir Nágranna??

Það sem vantar hér á landi er heimasíða og klúbbur. Ég geri mér alveg grein fyrir því að ef áhugi er fyrir hendi er svolitið mál að stofna klúbb en allaveganna er hægt að byrja á því að safna saman fólki. Þetta yrði ykkur að kostnaðarlausu og það eina sem þið þyrftuð að gera er að senda mér póst á larry@vísir.is með nafni og heimilisfangi. Einnig vantar fólk sem hefur áhuga á að vera með mér í þessu og er tilbúið að leggja svolitið á sig til að klúbbur komist á laggirnar.

með von um góðar undirtektir.

Stefán
larry@vísir.is