“How low will you go?” Þetta voru orð Lance í dag þegar að Toadie var að reyna að fá Lou til að semja við sig um afslátt af áfengi og rifta samningnum sem hann var búinn að gera við Lance. Lou er hins vegar ekki óheiðarlegur og sagði nei, og svo stóð Lance líka fyrir aftan Toadie :)

Í dag kom það sem sagt í ljós hver Sandy Swimmer var, enginn annar en Toadie! Eftir að Sandy stal hugmynd Lance's grunaði mig annaðhvort Toadie eða Steph, og þar sem Steph er bæði mjög traustur vinur og ekki í skólanum var Toadie 99,9% líklegur. Og ég spyr fólk, hvað finnst ykkur um þetta? Mér fannst þetta vægast sagt illa gert hjá honum, að koma svona aftan að greyið Lance (og stela einni hugmynd frá honum og reyna að stela annari). Svo hefur Toadie heldur enga stefnuskrá og mun aldrei geta staðið við helminginn af þessu partýum. Ég vona innilega að Lance vinni.

Annars hef ég heyrt (þetta er ekki spoiler, ég hef bara heyrt talað um þetta) að Lance muni e.t.v. hætta í Nágrönnum á næstunni og þetta verður kannski til þess, þ.e.a.s. hann verður mjög sár útí Toadie, flytur út, og kemur aldrei aftur. Eða hvað haldið þið?
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _