Kvöldið :)
Atriði sem hafa gerst sem ég hefði viljað stoppa eða hætta horfa á þættina þangað til að þetta væri liðið yfir eru;

Nágrannar.
Þegar allt það frábæra fólk (Tad, Flick, Paul, Hannah, Bill, Anne, Shell, Lance og fleiri) hættir í þáttunum. Þá er eins og það vanti bara besta partinn af þáttunum í þá, vill fá þau aftur og langaði ekkert að það hefði gerst! Þau atriði vill ég að hefðu stoppað, en svona gengur og gerist.
Þegar Dee dó og Toadie gekk í gegnum hræðilegt tímabil, hefði viljað að það hætti og líka þegar Madge dó og líka þegar Drew dó!
Þegar Stuart var í lífvélavirkjanum þá vildi ég að það hætti, en bara útaf það var svo leiðinlegt!

The O.C.
Þegar Oliver kom inní þættina vildi ég bara hætta að horfa á þá, en gat það auðvitað ekki! Ég hataði hann og vildi bara að hann gufaði upp og allt yrði frábært hjá Ryan og Marissu! Þessir 4 eða eitthvað þættir sem hann var í var ég bara reið við oc!

Ég bara veit ekkert meira sem mér dettur í hug, geri bara aðra grein ef mér dettur eitthvað skemmtilegra í hug :)
…Svo ætla ég að byrja með mitt eigið átak hérna þegar ég hef meiri tíma og er þegar byrjuð með eitt þannig að ég á von á því að verða virk næstu vikur hérna :) …Og vona að fleiri gefi sig tíma í það sama.
Takk fyrir lesninguna :)