Ég er rosalegur O.C fan og veit fátt skemmtilegra en að glápa á þessa þætti.

Það sem kom mér á óvart þegar ég horfði á fyrsta þá var að maður varð alveg hreint um leið húkt. Tókst meira að segja að draga kallinn minn í þættina líka.
Hver einn og einasti þáttur hefur verið snilld.

Ég er ein af þeim sem fer gjörsamlega inn í sjónvarpið og lifi mig inní þættina ;) Held nánast fyrir augun þegar það koma pínleg atriði og hlæ eins og geðveik hehehe ;)

Mitt uppáhald er Seth, mér finnst hann frábær karakter og ég get hlegið endalaust þegar hann byrjar. Hann er svo klunnalegur, tilsvörin hans eru sprenghlægileg og svo er hann svottan dúlla :)

Ótrúlegt hvað hann lætur Summer tuska sig til, á það til að garga “hvað gengur að þér drengur, láttana eiga sig” :)

Þetta eru þættir sem enginn ætti að láta framhjá sér fara, allavegana ekki án þess að gefa þeim tækifæri.

Takk fyrir mig
Kveðja
HJARTA
Kveðja