Lögreglustöð:
Mallet og Harley rífast um pabba hennar og að hún þurfi að vera árvökul og þess háttar. Eins að Mallet hafi áhyggjur af henni.

Diner:
Frank og Elanie eru ástfanginn. Nadine og Buzz tala saman. Hún vill að hann fari frá Springfield, því að Vanessa kom að þeim og gruni eitthvað og hvað mundi geta gerst ef hann er áfram í Springfield. Frank og Elanie tala um giftinguna og svo kemur Harley inn og Mallet á eftir henni og þau rífast um pabba Harley, Buzz heyrir þetta og fer að hugsa. Búðareigandi kemur og gefur Frank rúm, Frank og Buzz spjalla saman.

Cedars:
Eve er að tala við Dr. Lyndon og lætur hana hafa skýrslu sem Lyndon fer og ljósritar, á meðan kemur Mindy inn, Eve segir að gott sé að hún sé að leita sér aðstoðar. Mindy er kuldaleg við hana og hellir sér yfir hana. Hún segir svo Dr. Lyndin hvað henni liggur á hjarta.

Veitingastaður:
Alan Michael og Nick tala um framtíð blaðsins, Nick spyr A.M hvort hann þekki Mindy vel. A.M svarar því já og þá spyr Nick hvort hann haldi að Mindy væri ofbeldisfull, hann svara því neitandi, Nick segir þá honum þá hugmyndir sem hann hefur, en biður A.M að ekki segja neinum sérstaklega Eve. A.M er að fylla út ávísun til Elanie.

Hjá Frank og Elanie:
Hún er að setja saman rúm og svo kemur A.M og hjálpar henni. Hún spyr hversvegna hann er hérna, hann afsakarsig með því að hann væri bara að koma með ávísunina. Frank kemur svo og sér að Elanie er að búa um og felur hitt barnarúmið undir segldúk.


Hjá Billy Lewis:
Bridget og Hart koma inn með Peter, þau tala saman og svo kemur Nadine og sér þau svo fer Hart og Nadine kemur inn og spyr hvort Hart sé faðirinn en Bridget vill ekki svara og þá spyr hún aftur, Hún svarar því að Billy Lewis sé faðirinn.

Missi af þættinum á Fimmtudaginn, er einhver sem getur uppfrætt mig hvað gerðist. Var Harley rekin úr löggunni eða ?