Halló Huga fólk.
Mig langar að varpa fram einni spurningu.
Er það eðlilegt að blístra á eftir sætum stelpum?

Málið er það að einn vinur minn á það til að skrúfa niður bílrúðuna og blístra á eftir flottum stelpum! Ég tel þetta mjög svo óeðlilegt og hreint og beint vandræðalegt en hann vill halda öðru fram.
þ.e.a.s að þetta sé í fínasta lagi og ég sé bara svo gamaldags og lifi í fortíðinni! Nú langar mig að vita, hvað finnst ykkur um þetta? Er þetta kannski eðlilegt og í lagi? hvað finnst stelpum um að vera blístrað á eftir þeim?

Vissi nú ekki alveg hvar ég átti að setja þetta, en þetta er örugglega betur geymt hér en á kynlíf.

kv.
cul-de-sac