Ég er ný byrjuð að deita einn strák og hann er algjört æði það er alveg ótrúlegt hvað hann er góður og rólegur.
Enn þetta átti samt ekki að gerast.. við erum að vinna hjá sama fyrirtækinu og er eitt stærsta fyrirtæki sem er til á íslandi, Og þetta stóra fyrirtæki á um allt land og útí útlöndum mörg lítil fyrirtæki, við erum að vinna hjá sitthvoru fyrirtækinu hérna í rkv og þau tvö eru mjög náin..

Ég vann einn titill meðal annars 3 öðrum og erum að fara gera eitt stórt verkefni saman fyrir þessi fyrirtæki og fyrir okkur,og við höfum bara mánuð til að gera þetta verkefni sem er mjög lítill tími fyrir það.. enn þannig kynntist ég honum betur.

Við fórum útáland fyrir nokkrum vikum síðan og erum að vinna í þessu verkefni í 3 daga straight og okkur gekk mjög vel svo við ákvöðum að detta í það.. enda ég með honum á hóteli eitthverstaðar úti rassgati.. Þegar við komum á hótelið sem hinir voru á var allt brjálað því þetta átti ekkert að gerast og þetta ætti að vera frekar bannað.
enn okkur er svona frekar sama núna þó að við fengum smá móral eftir þetta útaf þeim.

Enn núna erum við búin að vera hittast alveg reglulega á kaffihúsum og fá okkur bjór og svona skemmtilegt.
Við vinnum bæði sirka 12-14 tíma á dag í viku og frí í 2 daga sirka fer eftir öllu.. þannig við erum alltaf að vinna og þegar við erum ekki að vinna þá erum við að vinna í verkefninu eða á bar með vinnufélögum okkar að fá okkur bjór eftir vinnu svo vinnan hjá okkur er basic lífið okkar í augnablikinu..

Hann er mjög virtur í sínu fyrirtæki og ég líka í mínu nema hann er búin að vera í þessu einu ári leingur enn ég enn við erum frekar svipuð í vinnu þannig séð.. nema hann er rólegri enn ég.. okei mikið rólegri enn ég.. enn já

Við tölum mjög mikið um vinnuna, verkefnið & vinnuna & meira um fyrirtækin & allt sem tengist því.
Og vá hvað við erum búin að tala mikið um það.. mjööög mikið.. Og líka fyrsta skipti hef ég verið að deita gaur sem skilur þetta alltsaman hehe.. sem er æðislegt!

Enn öh.. málið er að ég er að fá ógeð að tala um þetta svona mikið..það er bara eitthvað við það þegar við hittumst endum við að tala ýkt mikið um vinnuna og verkefnið.. mig langar að fa smá space frá því.
Langar að tala um eitthvað annað.. eitthvað allt annað enn vá mér fynst eins og ég veit ekkert annað, við erum nátturlega alltaf í vinnuni! Stundum veit maður ekki hvaða dagur er, ég er alltaf að ruglast á dögum & mánuðum og dagar renna í eitt mjög oft hjá mér.
Enn já hann er að fara bjóða mér fínt útað borða á laugardaginn og ég vil ekki tala um þetta þá..

Fáránlegt eins og það hljómar þá vantar mig hugmyndir um hvað maður getur talað um annað enn það sem maður gerir 24/7! Um hvað talið þið við deitið ykkar þegar þið farið á deit.. hehe sounds so hard..