Okei..
Það er ein stelpa sem ég var ekki viss um hvort ég væri að pæla í,
en núna held ég að ég sé að pæla í henni þannig séð.
Hún er sæt og skemmtileg og allt þannig..

En það er vesen ef vinur minn er líka að pæla í henni?

Því við erum alveg góðir vinir, en hann sagði að hann væri ekki að pæla
í henni.
En ég held að hún sé að pæla í öðrum hvorum okkar..
Eða kannski öðrum strák sem við þekkjum ekki :/

Semí vandræðalegt að tala um þetta við vin minn því hann vill ekki það mikið
tala um stelpur við mig..
samt er hann að tala við miklu fleiri stelpur en ég..

Málið er líka að ég þekki hana ekki það vel..
Væri alveg til í að segja bara eitthvað
“hey til í subway? eða bíó?” erfitt samt að segja það án þess að það verði fokk vandræðalegt en
stóra spurningin er..
er ég að pæla í henni eða ekki?
fokk ég er ekki viss sjálfur

Æji wtf, þetta er bara eitthvað rugl
skiptir engu..

Bætt við 1. apríl 2011 - 23:19
Ætla að “keppa” við vin minn um hana ef hún er að fýla okkur báða…
veit það samt ekki :/
Fokk