Jæja þannig er mál með vexti að snemma ársins 2007 byrjað ég
með stelpu, mér hefur aldrei á ævinni liðið eins vel og þá. Hún
svo fullkomin og allt svo yndislegt og tíminn með henni var bara
æðislegur. Síðar sama ár þá hættum við saman og meira segja
bara í góðu og allt svoleiðis, nenni ekki að fara útí ástæðuna
enda skiptir hún engu máli. Við ákvöddum bara að halda áfram
með lífið okkar og vera bara vinir. Hún byrjaði með öðrum strák
og ég byrjaði með annari stelpu. En það stlitnaði uppúr hjá mér
og þeirri stelpu eftir hálft ár og það slitnði líka uppúr
sambandinu hjá henn og þessum strák.
Alltaf var ég og hún samt vinir og töluðum mikið saman þó við
höfum verið komin bæði í ný sambönd og svoleiðis. En eins og
ég segi við urðum bæði single á ný og auðvitað góðir vinir og
tölum oft saman ennþann dag í dag og gerum ýmislegt saman
mera segja sem vinir bara. En málið er að ég er hræddur um að
ég muni aldrei komast yfir hana. Ég er ekkert í ástarsorg eða
neitt svoleiðis ég er ekki að segja það en mig langar bara svo
ótrúlega mikið að halda utanum hana aftur ég sakna svo
rosalega þess sem við áttum saman. Það sem meira er að ég er
að leyfa mér að halda að hún sé alveg á sama máli. Mér finnst
það allaveganna alltaf þegar ég er að tala við hana eða hitti hana
eða eitthvað. En við erum bæði svo feimin að hvorki ég þori að
byrja að tala um þetta og hún er svona svipuð týpa og ég með
það að gera að hún myndi ekki þora því heldur. Ég auðvitað
hugsa mikið um hvað ef ég myndi spyrja hana og svo hef ég bara
svona svakalega rangt fyrir mér.
En já ég er nú svona aðeilga bara að leita að svipuðum sögum
eða eitthvað slíkt, getur það verið að maður elski einhverntíman
manneskju svo heitt að maður mun ALDREI komast yfir hana.
Ítraka það aftur ég er ekkert í neinni ástarsorg eða neitt þannig
ég bara sakna hennar svo ótrúlega mikið og ég elska hana meira
en allt. Hef margoft heyrt fólk tala um að maður jafni sig alveg á
svona og hætti að hugsa um þá manneskju eins og maður gerði.
En ég hef verið með þremur stelpum um ævina. Pæli ekki
einusinni í þessum tvem hinum en þessi eina bara sem eru
komin meira en 3 ár síðan ég hætti með. Ég elska hana alltof
mikið og ég held að það muni aldrei breytast, og eins og ég segi
þá finnst mér alveg miðað við hvernig hún hegðar sér að hún sé
á sama máli. Mig dreymdi meira segja núna síðustu nótt að ég
var að tala við hana á msn, man ekkertum hvað við töluðum í
þessum draumi en eina setningu sem hún skrifaði til mín man ég
mjög vel og hún var svona “Mig hefur lengi langað til að segja
þér þetta en ég sakna þín ofboðslega mikið og tímans sem við
áttum saman”

Auðvitað er þetta eitthvað sem mig langar rosalega mikið að
verði aftur en er það tilfellið að ég sé að fá einhver skilaboð/hint
í draumi?

Kveðja nafnlaus
Moderator @ /fjarmal & /romantik.