Nú er ég svo óendanlega forvitin manneskja…

Þegar þið hafið hætt með maka hvernig gerið þið það? Mér finnst nefninlega alveg ótrúlegt hvernig sumir fara að þessu.

Hef sjálf lent í að mér sé dumpað í gegnum sms (ekkert smá fáránlegt!) og líka að eftir 3 ára samband horfði minn fyrrverandi í augun á mér og basically sagði “ég elska þig ekki lengur”!

Líka, minn núverandi lenti í því að hans fyrrverandi hætti með honum í gegn um msn eftir 2 ára samband og fór svo og byrjaði með vin hans… :P

En þó að þetta kannski hljómar allt illa þá náttúrulega hættir fólk saman á góðann hátt líka.

Ég er bara að vera forvitin, hvernig hafið þið hætt með maka, eða hvernig hefur verið hætt með ykkur???

Bætt við 31. ágúst 2010 - 20:42
byrjaði með vin hans… :P

Átti að vera :/ kall…

:P
Stoltasta mamma í heimi! :D