jæja þetta ætti nú eiginlega að flokkast sem nöldur en þar sem það er ekkert soleiðis hér skelli ég þessu bara í vandamál.

Ég horfi yfirleitt alltaf fyrst á útlit áður en ég reyni eitthvað með stelpu, en ég er samt ekki að leita mér að neinni trophy wife týpu, ég vil stelpu með vit á milli eyrnanna, og skoðanir.

Og nú spyr ég, er það virkilega sona algengt að “fallegu stelpurnar” leyfi sér það að vita ekki hvar akureyri er, eða er ég bara að lenda á vitlausum mannskap. Er of mikils til ætlast að hitta stelpu sem er heppin í andlitinu OG veit hver bauð sig fram á móti Obama í Bandarísku kosningunum.

(btw taka það fram að ég er aðeins 14, þannig að það er soldið langsótt að fólk sé að taka mark á mér, hef svosem nægan tíma til að átta mig á því hvernig landið liggur hjá íslensku kvennfólki. En þetta böggar mig samt)