Jæja þá er ég nýkomin á laust eftir nokkuð langt samband.
Ég hef augastað á dreng sem er með mér í einu fagi í skólanum og ég þekki hann lítillega en ég er ekki búin að vera “on the market” í dáldinn tíma þannig ég er orðin nokkuð ryðguð í höslinu.
Ég veit það dugar lítið að biðja um ráð hérna, en strákar, hvað finnst ykkur fráhrindandi við stelpur? Þ.e.a.s. ef þið hefðuð grun um að stelpa væri til í ykkur, hvað mundi gera það að verkum að þið munduð forðast hana? :p

Æj ég veit ekki hvernig ég á beinlínis að orða þetta, en mig langar bara að vita hvað ég á EKKI að gera, svo hann haldi nú ekki að ég sé algjört frík :D

Þið megið alveg sleppa því að skíta yfir mig :]
nei