Ég hélt að sú stund kæmi aldrei að ég mundi búa til þráð hérna á rómantik, en allaveganna hér kemur það. Ég held þessu bara stutt.

Ég er mjög hrifinn af sérstakri stelpu, hún er ekki eins og flestar stelpur, hún er meira svona “wild and rough”, samt ekki karlmannaleg!

Allaveganna, ég hef ekki verið það hrifinn af stelpu í langann tíma og vil gera þetta rétt. Áður fyrr hef ég bara hitt stelpur í partý eða á djamminu, hlutir hafa þróast þaðan, og síðan það klassíska bjóða stelpum í bío/mat eða eitthvað svoleiðis.

Kominn með leið á þessar aðferðir, þannig að ég spyr ykkur stelpur:

Hvað finnst ykkur um stráka sem opna hjartað sitt og segjir ykkur frá tilfinningunum sínum gagnvart ykkur? Eru menn sem gera það bara fáranlegir?

Ég hef verið svoldi óviss varðandi þessu og hef hreinlega bara ekki þorað að gera neitt í málinu.

Bætt við 14. desember 2008 - 03:36
Vildi bara segja fólki frá því að við erum vinir… Og er stundum með henni í frítímanum mínum. Bara þannig að þið haldið ekki að þetta sé neitt stalker mál.