Sælt veri fólkið.

Staðan hjá mér er sú að ég hafði áhuga á náunga sem ég kannaðist við, en þá var hann í sambandi. Núna er hann hættur með kærustunni og er skyndilega farinn að sýna mér mjög mikinn áhuga og alltaf að bjóða mér með í hitt og þetta, oftast með öðru fólki en upp á síðkastið á “deit” án þess þó að nota það orð.

Ég hef bara engann áhuga á honum lengur, ekki það að ég vilji bara það sem ég fæ ekki, heldur var ég búin að missa áhugann áður en hann hætti með þeirri fyrrverandi.

Málið er að ég er að reyna að hinta að því að ég hafi ekki þannig áhuga, en þegar beiðnirnar eru ósköp saklausar og mig langar að vera með, þá á ég erfitt með að neita án þess að vera bara hreint út dónaleg.

Mér líkar rosa vel við kauða og vil þessvegna forðast öll vandræðalegheit, sem væru óumflýjanleg ef ég mundi ræða þetta beint við hann… en á sama tíma vil ég ekki ýja bara að þessu að eilífu því þá er hann að eyða tíma sínum og það gæti verið litið svo á að ég væri að “leika mér að honum”.

Mig langar þessvegna að finna upp á eitthverri leið til að koma skilaboðunum áleiðis án þess að skapa vandræðalegheit.

Hugmyndir? Please :)
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'