Ókei þessi korkur á eflaust eftir að hljóma frekar fáránlega en ég vil forvitnast hvort einhver hefur verið í sömu furðulegu sporum og ég..

Hver hefur ekki horft á bíómynd eða þætti og séð leikkonu/leikara sem heilluðu þá, og þá er ég að meina ekki útaf leiklistarhæfileikum endilega, heldur meira svona “persónulega”. Maður verður sjálfkrafa svona hálfpartinn “hrifinn” af leikaranum/leikkonunni en ekki á þann hátt að maður vilji vera í sambandi við manneskjuna enda bara persóna á skjánum ef þið skiljið hvað ég á við.

Ég eins og örugglega flestir strákar hef séð leikkonur sem mér finnst mjög aðlaðandi og flestar stelpur séð leikara á þann hátt líka. En málið er að núna er ég hræddur um að ég hafi látið það lifa of lengi þannig og er því kominn á næsta stig, að vera nánast bókstaflega hrifinn af leikkonunni, sem mér finnst sjálfum alveg ferlega skrítið. Í mínu tilfelli er það leikkonan Pippa Black úr Áströlsku þáttunum Neighbours. Ég hef oft grínast með það hvað ég fíla Pippu og svona bara saklaust og hef gert lengi, en ég átti ekki von á því að þær “tilfinningar” færu út í alvöruna.

Um daginn sá ég brot úr bíómyndinni My Date With Drew og ég held að ég hafi náð svona aðal söguþræðinum. En þar segir frá venjulegum gaur útí bæ sem að er að reyna að komast á stefnumót við stórstjörnuna Drew Barrymore. Svo líður eitthvað en að lokum þá kemst hann á “stefnumót” við Drew og er auðvitað alsæll með það.
En eftir að hafa séð bróðurpartinn af þessari mynd þá fór hálfvitinn ég að hugsa bara ósjálfrátt að þetta væri nú sniðugt og að ég gæti gert þetta með Pippu. Og ég auðvitað fór að hugsa mikið um þetta og áttaði mig þá á því að ég vildi virkilega hitta hana. Af hverju veit ég ekki aalveg. Ég var ekki lengur á þeim stað að mér fannst hún aðlaðandi, ég var held ég orðinn hrifinn af henni, manneskju sem ég þekki ekki neitt og býr í Ástralíu!

Og núna er svo komið að þegar ég horfi á Neighbours eða sé eitthvað á youtube eða hvar sem ég sé hana, þá fæ ég hálfgerðan sting í magann af því að ég veit að ég mun aldrei geta hitt hana. Ég veit sjálfur fullkomlega að ef svo ólíklega vildi til að ég mundi hitta hana þá mundi auðvitað ekkert gerast hah, það er eiginlega bara fáránlegt ef mig mundi dreyma um það.

Ég satt að segja veit ekki af hverju ég er að skrifa þetta, það er ekki eins og ég sé í einhverri ástarsorg útaf henni haha, mér finnst þetta svo kjánalegt þótt þetta sé allt satt.
En það væri gaman ef einhver hefði lent í einhverju svipuðu og vildi segja frá ? :)

- Stec sem elskar Pippu Black :) hah

Bætt við 27. ágúst 2008 - 23:04
http://www.hugi.is/sapur/images.php?page=view&contentId=6085493 :)