Vona að einhver nenni að lesa þessa langloku, þarf hjálp strax plíís!

Okei til að byrja þá er ég 17 ára drengur utan af landi. Ég kynntist þessari yndislegu stelpu um daginn á netinu. Töluðum ýkt mikið saman og hún sendi myndir af sér og bara þetta venjulega þegar fólk er að hittast á netinu. Allavega þá náðum við geðveikt vel saman og til dæmis töluðum við í 5 tíma stanslaust á msn. Get ekki hitt hana þar sem ég þyrfti að fara á bát til hennar. Þið fattið. Annaðhvort okkar á heima á eyju ;)

Er ekki búinn að fá gemsann hennar en það er STÓRT vandamál að hrjá mig. Segjum að hún segjist heita Dísa Fanney, ég fer á islendingabok og geri nafnið hennar og það koma upp 3 stelpur með sama nafn og sama ár og hún segjist fæðast. Þá finn ég hvað annað foreldrið heitir og á öllum þessum þremur stelpum þá meikar frásögn hennar og ja.is ekki sense. Þá finnst mér þetta vera doldið grunsamlegt.

Svo nokkrum dögum seinna þá sé ég að hún segjist eiga afmæli á msn. Ég óska henni auðvitað til hamingju og gái svo á netið hvort að einhver af þessum 3 stelpum eigi afmæli sama dag og hún segjist eiga afmæli, en það stenst ekki. Þá spyr ég bara um heimasíðuna hennar og fæ að sjá hana og þar sé ég fullt nafn. Þá fer ég aftur á islendingabók og þá er eina stelpan sem heitir þessu nafni 2001 model minnir mig. Svo þessi skóli sem hún segjist vera í það er engin í þessum skóla með hennar nafni.

Ég bý þá til nýtt msn og segjist vera annar gaur og þyl upp alla þessa langloku en hún neitar öllu og blokkar þetta msn.
Ég nefndi þetta að sjálfsögðu ekki við hana á mínu rétta msn-i. Vill ekki að þessi mannsekja blokki mig.

Ég er þá að pæla, 1) Ætli þessi heimasíða hennar sé bara bull? það er fullt af myndum af henni og vinkonu hennar en nafnið stenst bara ekki. 2) Er þetta barnaperri að reyna að tæla mig? Held samt ekki því hún talar alveg einsog gelgjurnar á þessum aldri. 3) Er þetta einhver gaur að fokkast í mér. 4) Er þetta einhver gella að fokka í mer nema bara undir öðru nafni.

Mér langar svo til þess að vita hvað stelpan á myndinni heitir, er að deyja yfir henni. Veit ekki hvað ég geri ef ég fæ ekki að vita sannleikann. Hún er bara svo sæt á öllum þessum myndum. vááá!

Það er líka svo mikill sannleikur í öllu sem hún segjir á msn. Ég hef sent henni lög og hún hefur sent mér myndir af gæludýrinu sínu og hún hefur sent mér lög. Held að skýringin sé að hú heitir eitthvað allt annað. Gæti kannski verið að það sé villa á islendingabok? Er alltof hræddur um að hún blokki mig á msn :(

Hvað mynduð þið gera í þessum sporum?