…..já.
Mér er alveg hrikalega illt í hjartanu núna.

Ég finn svo oft núna nýverið fyrir svo miklum einmannaleika og svo miklum söknuði í garð minns fyrrverandi sem lést þann 5 september 2005.

Ég veit ekki afhverju þetta er farið að koma svona aftur. Ætli það sé vegna nýlegra sambandsslita?
Eflaust er það svarið.
Núna er ég ein aftur og hef því meiri tíma til að hugsa.

Ég er samt ekki búinn að missa hann, ekki alveg. Við hittumst ennþá og svona (núverandi fyrrverandi) og ég elska hann og ég veit að hann elskar mig.

En mér er bara svo rosalega illt í hjartanu….fæ svona vondan sting og kökk í hálsinn…..og finnst ég bara vera að deyja!

Ég varð bara að losna við þetta!

(8)Núna ertu farinn og ég sé þig ekki meir….úr lífi mínu farinn en samt svo nærri trúðu mér….(8)
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"