Sko, ég og kærastinn minn erum búin að vera vinir doldið lengi, og við vorum saman í sept-okt í fyrra og þá bara eithvað stutt, og vorum vinir fyrir það og alveg hingað til..

Og hann sagði mér allt um stelpurnar og ég sagði honum allt um mín strákamál og allt það, og hann sagði mér að hann væri þvílíkt hrifinn af stelpu sem er ein besta vinkona hans, og síðan allt í einu byrjuðum ég og hann aftur saman, og á því tímabili var eithvað vesen hjá þeim í gangi(þau voru aldrei saman, bara vinir samt )… Og núna er hann mjög oft að hanga með henni, og ég er mjög svo afbríðissöm… En ég þori ekki að segja neitt um þetta við hann.

Þau eru náttla eilla bestu vinir og ég vil alls ekki banna honum að hitta hana eða hætta að tala við hana, en ég er bara svo hrædd um að ef hún fer að reyna við hann þá gerist eithvað þar..

Og ég er búin að vera hrifin af honum síðan að ég kynntist honum. Síðan um dagin fór ég eithvað á smá djamm og vinur minn var að reyna við mig og eithvað, og ég náttla gerði ekkert nema að segja honum að hætta, síðan þegar ég kom heim sagði ég kærstanum frá því, og hann varð brjálaður! Alls ekki glaður ! Og ættlaði að myhrða gaurinn! Ég er núna hætt að tala við enn vin minn útaf honum, ég hafði reynar alveg ágæta ástæðu miðað við hvernig hann lét.. Og sé ekkert eftir því að hafa hætt því…

En ég er bara svona að pæla hvort ég sé svona ömurleg bara eða hvað..

——

Og síðan var líka annað….

Ég veit vel að maður á ekki að gera elskað svona ung/ur ég er sko bara ‘93 módelið, er reynar frekar þroskuð miðað við aldur þótt ég segji sjálf frá.. Og líka kærastinn minn er ’89 þannig að… En ég held að ég eigi ekki að geta elskað, en ég ber bara tilfinningar til hans sem ég hef aldrei fundið fyrir áður með strák, og ég hef verið með frekar mörgum sko! Alltaf þegar hann kyssir mig eða knúsar mig kikna ég í hnjánum.. Þegar hann segist elska mig þá fæ ég svona þæglegann straum um allan líkamann.. Og þegar hann hringir eða sendir sms þá fæ ég svona rosalega hamingju tilfinningu um allan líkamann og allt verður fullkomið einhvervegin..

Ég er hef alveg verið ánægð með mörgum af strákunum sem ég hef verið með, en samt aldrei í lífi mínu eins og núna..

Við höfum gert svo margt skemmtilegt saman og stundum með einhverjum úr fjölskyldum okkar líka.. Og ég hef átt æðislegurstu stundir lífs míns með honum….

Ég er að pæla hvort þetta sé ást, mér finnst það.. En kannski er ég bara enþá á þessu skeiði að kalla allt ást..

Plís ekkert drull.. varð bara að koma þessu frá mér..