Hæ….ég veit ekki hvort þetta er vandamál eða ekki. Ég hef aldrei átt kærasta áður, en það er ekki málið. Fyrir svolitlu síðan hitti ég strák sem ég féll fyrir. Ég ákvað að segja honum að ég væri hrifin af honum, og hann sagði að hann hefði líka áhuga á mér. Við fórum á smá svona “deit” og við gengum bara, jahh, frekar langt. Daginn eftir sendi ég honum sms, en fékk ekkert svar…mér var svosem sama, þetta var ekkert sem ég ætlaðist til að fá svar við. Svo daginn eftir það sendi ég honum sms um að hann mætti sækja mig í vinnuna ef hann nennti. Ekkert svar. Í dag ætlaði hann að sækja mig og við ætluðum bara að hittast aðeins fyrir jólin. Hann sagðist hringja….gerði það ekki. Ég er ekkert að brotna niður neitt. Ég bara veit ekki hvað ég á að gera. Ég er alveg ekki að skilja !