Halló! Ég er 17 ára stelpa sem þarf að fá smá útrás :p

Eruð þið ástfangin og í happy sambandi?
Ég er það…hann er það besta sem fyrir mig hefur komið. Ekkert er yndislegra en að hlakka alltaf til að koma heim úr skólanum eða vinnunni því að þá getur maður hitt ástina sína. Svo er maður alltaf með þetta “fiðrildi” í maganum..mmm þetta er ÆÐISLEG tilfinning er það ekki? Fáið þið ekki svona fiðrildi í magann?
Ég elska unnusta minn út af lífinu..þetta er annað sambandið mitt og ég hef aldrei verið svona ástfangin..ekki einu sinni af mínum fyrrverandi (það samband stóð í eitt og hálft ár sirka…var að nálgast 2 ár)
Ég veit ekki alveg tilganginn með að skrifa þetta hérna en ég verð einhvernegin að fá einhverskonar útrás fyrir ást mína því ég er gjörsamlega að springa. Mig langar að segja hvað ég er ástfangin og gá hvort öðrum líður eins?
Þetta er allavega æðisleg tilfinning og ég vona að aðrir hafi upplifað þetta líka og eru að upplifa þetta.
Unnusti minn er búinn að hjálpa mér í gegnum svo margt…eftir hitt sambandið var ég niðurbrotin, sjálfstraustið í skít og ég var búin að missa alla vini míni. Minn fyrrverandi var alltaf að setja eitthvað út á líkama minn, ég veit að ég er ekki fullkominn en vá að vera að rakka mann svona niður…eins og hann var alltaf að segja eitthvað eins og “af hverju eru brjóstin þín ekki svona?” Þið getið ekki ýmindað ykkur hversu illa mér leið við að heyra þetta. Ég var alltaf að fela brjóstin mín..var aldrei alveg ber að ofan..alltaf í brjóstarhaldara allavega. Og svo margt annað..eins og að banna mér að hitta vini mína og svona þetta var ömurlegur tími þetta eitt og hálft ár.

Svo núna Einu ári seinna þá hitti ég þennan strák sem er unnusti minn í dag.
Hann elskar mig út af lífinu, hann er alltaf að segja mér hvað hann elskar mig mikið. Hann hrósar líkama mínum og segist elska brjóstin mín og allt við mig. Segir alltaf að ég sé skemmtileg og að ég sé akkurat fyrir hann og hann treistir mér fyrir öllu. Mér líður svo vel. Við tvö erum eitt.

Hann er til í að prófa allt með mér og honum langar svo að gera allt með mér. Það er eins til baka, allt skemmtilegt sem ég upplifi langar mig að upplifa með honum. Hann er minn besti vinur og félagi. Við erum núna búin að vera trúlofuð í einn og hálfan mánuð og ég gæti ekki verið ánægðari!

Eruð þið að upplifa það sama? Hvernig líður ykkur með unnustu/unnusta ykkar?

Vá hvað það var gott að koma þessu einhvernegin frá sér..ég varð bara einhvernegin að setjast niður og skrifa það sem ég hugsaði…. thanks for reading :*

Kv: Nyuu
Honey! Get mommy's Bazooka!