Þessi þráður passar hvergi hingað inn, en ákvað að setja hann bara í almennt..

Málið er, að ég hef komist að því að strákar eru FÍFL! Allavega margir, ég ætla ekki að alhæfa, en miðað við mína reynslu er virkilega stór hluti strákanna ekkert nema fávitar. Sorry, örugglega til góðir gaurar þarna úti en ég virðist alltaf lenda á þeim sem eru það alls ekki

Mér er alveg sama, ég á eftir að sjá svo eftir þvi að hafa sent þetta hingað inn, en ég verð að koma þessu frá mér. Ég þoli ekki hvað ég þarf að taka þetta inná mig, afhverju er þetta ekki svo einfalt að ég geti bara verið glöð yfir því að hafa loksins komist að því að þessi strákur er svona mikill fáviti ?! Þoli þetta ekki, mig langar ekki að láta hann hafi þessi áhrif á mig…

Ekki eins og þetta hafi verið eitthvað alvarlegt. Samt greinilega nógu alvarlegt til að hann hefði fullan rétt á að vita allt um mig, við hverja ég talaði á msn, í síma, og ef ég talaði of lengi við einhvern strák, þá voru sumir ekki sáttir og fóru í fýlu eins og 5 ára krakki. Og ég var auvðitað nógu heimsk til að sleikja úr honum fýluna aftur.
Þrátt fyrir að vinkonur mína hefðu varað mig við því… afhverju HLUSTAÐI ég ekki ?! ég býst ekki við að þið getið svarað því.

enda er ég ekki að vænta svara, ég veit alveg að sá sem á að lesa er að lesa þetta, hann passaði nógu vel að vakta allt sem ég skrifa allstaðar, á bloggsíður, huga og allt bara.
Þá máttu vita eitt- að þú ert fáviti og sjálfselskt fífl!

Góða nótt