Tilfinningar mínar eru ekki til þess að stíga á. Ég dæli ekki kossum, faðmlögum, ást, tilfinningum, ofl. bara út af því að mér finnst það skemmtilegt. Ég geri það ekki einungis upp á gamanið, heldur geri ég það upp á vellíðunina og afleiðingarnar. Þó þér sé einni lagið að koma manni í ójafnvægi, þar sem hverjum orsökum fylgir afleiðing, nema maður sé að þessu upp á gamanið. Eitt skaltu vita, ég er það ekki!

Ég vona að þú gerir þér grein fyrir því hvað þetta er sárt fyrir mig! Þú kysstir mig þarna um kvöldið. Ég sendi þér sms og vonaðist um meira, en fékk aldrei svar. Seinna frétti ég frá vinkonu þinni að þessi koss þarna um kvöldið hafi verið meiningar- og innihaldslaus. Þú getur ekki ímyndað þér hvað þetta stingur.

Ég varð bara að koma þessu frá mér.
Gaui