Jæja, ég er orðinn hrifinn af stelpu. Ég er búinn að vera spjalla mikið við hana á MSN undanfarnar vikur og held ég að hún hafi smá áhuga líka. Hún er í útlöndum núna og ég ætla að reyna hitta hana strax eftir að hún kemur heim í næsta mánuði. En svo er vandinn, hún er að fara út sem skiptinemi í 1 ár núna í ágúst. Ætti ég að kvelja sjálfan mig og reyna hætta við þetta allt saman áður en ég verð ofboðslega hrifin því það verður bara meiri kvöld þegar hún fer út ?