Jæja nú ætla ég að deila með ykkur HRIKALEGA vandræðalegri sögu sem gerðist fyrir 3 árum síðan.
Til að gera langaa sögu stutta þá kynntist ég strák í sameiginlegan kunningja í gegnum síma og við urðum svona “sms vinir” (hljómar asnalega en löng saga:)við byrjuðum á því að sms-ast voða gaman síðan byrjaði strákurinn að hringja í mig og ég í hann maður var farinn að fá svona góða nótt dúlla sms á kvöldin voða rómó.
Síðan eftir smá tíma sem við vorum bara búin að vera í símasambandi var kominn tími til að hittast okei gott mál.
Besti vinur minn skutlaði mér til hans og þurfti síðan að fara að skulta félaga sínum eitthvert annað ég átti síðan bara að hringja í hann þegar hann átti að koma og sækja mig.
Okei stundinn var runnin upp ég stóð á tröpponum og dinglaði bjöllunni ég heyrði í honum labbað niður stiga til að koma og opna hjatrað í mér að deyja því að hann var með svo flotta rödd og auðvitað vildi maður fá restina af pakkanum góðan líka.
Hann opnar SH#TT það eina sem flaug í gegnum hausinn á mér hvað mig langaði að vera eitthvað allt annað en ég er núna runni eða eitthvað.
Hann var svona 1.85 á hæð og hann var svo horaður það var eins og hann hafði ekki étið í mánuð ALVARLEGA horaður kinnfiskusoginn og það vanntaði tvær frammtennur í hann og restinn af þeim voru brúnar.
Okei við förum upp hann bíður mér innég sesst í sófa og upp úr því hefst þvílíkur rembingur á að reyna halda uppi samræðum.

Vitir menn vinir hans sem hann var að leigja með komu inn og löguðu hlutina aðeins á meðan byrja ég að skrifa sms til besta vinar míns sem skutlaði mér :HJÁLP KODDU NÚNA AÐ SÆKJA MIG HANN ER SVO LJÓTUR:(ég vil taka það fram að stuttu áður hafði ég og strákurinn verið að sms-ast) okei þannig ég sendi smsið, 3 sek seinna heyri ég að síminn hjá stráknum pípir FFF####KKKK ég sendi honum smsið en ekki besta vini mínum á þessum tímapunkti langaði mig að deyja sem betur fer voru vinir hans ennþá að chatta við okkur þannig hann gerði enginn læti út af smsinu vinur minn kom og sótti mig kom meira segja inn bara til að sjá hann
Ég sver ég hef aldrei heyrt vin minn hlæja svona hátt og mikið, ég hlæ ennþá að þessu í dag.
Ég heyrði aldrei frá þessum strák aftur og fór aldrei á blint stefnumót aftur.
Þetta er dag satt
: )