ég veit ekki hvort ég á að setja þetta hér eða í almennt en fannst þetta betri staður fyrir þetta.

Þið kannist kannski við að fólk sé að leika sér með ástina og segjast vilja byrja með þér og þú yfirþig hrifin/n og segir já og svo heldur þetta áfram.

Ég lenti í þessu áðan og er núna reiður pirraður og særður en það var þannig að ég kynntist stelpu sem er árinu yngri en ég og við vorum búin að tala lengi saman á msn og hún segist vera hrifin af mér og að hún vilji byrja með mér og ég sagði “já” en svo bara núna í dag þá sagði hún “hahahahaha þetta var bara allt djók” og ég varð ógeðslega reiður og sagði:“þetta hel***is djók þitt hefur gengið allt of langt.það á ekki að leika sér með ástina eins og þú ert búin að gera :@.” man þetta ekki orðrétt en þetta var einhvervegin svona. Ohh hvað ég var reiður útí hana að það er ekki lýsanlegt.

hefur einhver lent í þessu sama og ég ?

P.s. ég veit að tilfinningar mínar koma oft fyrir í textanum