Í byrjun sumarsins var ég í partýi og það endaði með því að ég kyssti eina stelpu í bekknum mínum. Hún hrindgi í mig daginn eftir og spurði hvort ég vildi ekki koma til hennar. Ég gerði það og við töluðum saman. Hún sagði að hún hefði hætt með kærasta sínum um það bil 2 mánuðum fyrir sumarið og vildi ekki neitt samband. Hún vildi semsagt að við værum nokkurn veginn samband en við værum samt ekki saman og við segðum engum frá því. Mér fannst þetta ágætt því að ég vildi vera nokkuð mikið með vinum mínum í sumar líka. Síðan flaug ég til Íslands í júlí (ég bý sko í Svíþjóð) og hún saknaði mín mjög. Ég saknaði hennar líka nokkuð mikið og þegar ég kom aftur til Svíþjóðar var ég með henni allan tímann í 5 daga. Þá var nefninlega komið að því að fara í frí í 2 vikur á eyju sem að heitir Gotland og er fyrir utan Svíþjóð. Ég var útá miðju landi á Gotlandi þar sem að ekkert símasamband er og ég náði að hringja í hana fyrst eftir 5 daga held ég. Þá var hún ánægð að heyra í mér en eftir þetta heyrðum við ekkert í hvort öðru fyrr en að við sáumst þegar ég kom heim til Malmö. Þá var eins og við værum bara tvær manneskjur sem að eru í sama bekk. Við kysstumst ekki eða neitt. Þetta var mjög skrítið og ég ætlaði að tala við hana einhverntímann en ég gleymdi því og fyrir svona 3 vikum byrjaði hún með stráki sem að ég þekki. Þetta hætti bara án þess að nokkur sagði nokkuð en ef ég á að segja eins og er þá er mér eiginlega alveg sama því að ég var ekkert það ástfanginn af henni. Þetta gerði sambandið mjög skrítið og fyrir svona 5 dögum talaði ég við hana á msn og hún spurði útí þetta (það var í fyrsta sinn sem að ég talaði við hana um þetta). Ég sagðist ekki vita almennilega hvað gerðist og hún sagði að það leit ekki út fyrir að við skiptum okkur sérstaklega mikið að þessu. En það var þannig sem það átti að vera skildist mér :S. Hún sagði að hún fattaði það þegar hún kyssti annan strák á meðan ég var á Gotlandi (það var ekki þessi strákur sem hún er með núna heldur einn besti vinur minn. Ég ætti eiginlega að vera reiður en mér er alveg sama eins og ég hef sagt). Í rauninni veit ég ekki einu sinni afhverju ég er að hugsa útí þetta! En þetta er alveg bókað það skrítnasta sem hefur gerst fyrir mig í ástarsamböndum!