Til að byrja með vil ég segja öllum sem kannast við nikkið mitt að annaðhvort koma sér í burtu af þessum þræði eða sverja þagnareið.

Takk.

Jæja, þannig er statt fyrir mig að ég þekki stúlku, skemmtilega.

Hvernig við kynntumst? Ég veit það ekki, allt í einu var hún bara á contact-listanum mínum á MSN. Við byrjuðum að tala um svona létt bull, stutt og skemmtileg samtöl. Síðan töluðum við aðeins meira og kynntumst smá, mest bara svona persónuleikarnir og þvílíkt.

Síðan skrepp ég að hitta hana. Við töluðum í 2 klst um alls ekkert, sem var nokk gaman bara, allavega leið tíminn geðveikt hratt fyrir okkur. Síðan fórum við og hittum vinkonur hennar, aðrir tveir tímar fljúga og ég þarf að fara að halda heim á leið.

Síðan hef ég talað aðeins við hana á MSN, svipað og áður.

Eitt veit ég, að stelpan eigi oftast frumkvæði a samræðum þar er örugglega ekkert til að óttast.

Að lokum vil ég taka fram að ef þú kannast hið minnsta við atburðarásina, að það er ímyndun. Ein stór ímyndun. Lokaðu núna augunum og horfðu á vasaúrið mitt… Sveiflast til og frá… Þú ert orðin syfjuð/aður… Þú kannast ekki við þessa atburðarás þegar ég smelli fingrum…

*smellir fingrum*

Ég hef ekki hugmynd um hvert vandamálið er, en endilega gefið komment um hvernig heilla sakl stúlku, ég hef ekki mikla þjálfun í því sökum feimni.