Svo er nú komið að ég er búinn að vera skotinn í stelpu í nokkra mánuði en ég hef aldrei þorað að tjá henni tilfiningar mínar sökum feimni. Og ef hún myndi segja nei þá væri það pínlegt að þurfa að vera í sömu kennslustofu og hún.
Ég er að springa vegna þess að ég hef bælt tilfinningar mínar svo lengi. Hvað á ég að gera? Ég hef enga reynslu af samböndum ef það hjálpar.