Ja það var nú bara þannig að ég hitti flottustu stelpu sem ég hef nokkurntíman séð í Kringlunni á laugardaginn.
Mig langar geðveikt að kynnast henni og þannig en ég hef bara sagt við hana nokkur orð þannig……

Ég sá hana í McDonalds röðinni og ég bara stóðst ekki mátið og var alltaf að horfa á hana og svo tók hún eftir þessu og ég fór geðveikt hjá mér.
Svo þegar ég fór í burtu labbaði ég af tilviljun með vinum mínum u.þ.b 6 sinnum framhjá henni.
Og svo spurði hún mig hvað ég héti og ég hana en svo varð ég að fara inn í bíóið og missti af henni en mig langar geðveikt að tala við hana aftur.

Bara láta ykkur vita svo þið getið sent mér skilaboð ef þið þekkið hana og ef hún les þetta þá heitir hún Ásdís og er dökkhærð og hún er bara flottasta stelpa sem til er.