hæ, ég vona að það sé einhver sem getur hjálpað mér. Þannig er mál með vexti að ég er í sambandi við giftan mann.
Þessi maður er mjög gáfaður og sætur og ég lít mikið upp til hans.
En hann er 15 árum eldri en ég…og svo illa vill til að hann er kennarinn minn.
ég elska hann mjög mikið en það er galli á gjöf Njarðar, hann felldi mig á lokaprófi nú um jólin!!!! ég bjóst alls ekki við því að hann myndi gera það og bjóst satt best að segja ekki við þessu. Ég veit að það er rangt af mér en þetta fer rosalega í taugarnar á mér. Og hvað finnst ykkur um aldursmuninn? Ég er 22 og hann er 37…?? Langar bara að heyra álit ykkar…og ekki bara svar frá gelgjum!!