Ég var ekki alveg viss inn á hvaða kork á átti að setja þetta en ákvað bara að smella þessu hingað.

Þannig er mál með vexti ég er búin að vera hrifin af stelpu svo frekar lengi en hef aldrei gert neit í því, við erum góðir vinir og finnst mér alls ekki erfit að tala við hana og er í reglulegu sambandi við hana og við kíkum oft út saman í bíó og svona en það er altaf einhver með okkur aldrei við einn.

En nú ætla ég að reyna að gera eithvað í mínum málum og bjóða henni eithvað einni út, en ég veit bara ekki alveg hvert og hvað ég á að bjóða henni. Matur og bíó? Hvað myndu þið vilja gera stelpur? Og já ég er nú þegar búin að fjárfesta í lítilli gjöf sem ég veit að henni á eftir að líka.

En endilega sem flestir að koma með hugmyndir og talið endilega af eigin reynslu, ég vill ekki heldur vera að ofgera neitt gjöf+bíó+matur kannski full mikið ég veit ekki.