Í sumar fór ég í túristaferð með þýskum túristum því að pabbi minn er leiðsögumaður og ég fékk að fara með.
Einn túristin var ótrúlega sæt, hraust, skemmtileg og bara fullkomin stelpa sem er jafn gömul og ég. Við urðum ótrúlegir vinir og vorum alltaf saman. Við urðu þó ekki par en ég veit að henni líkaði við mig. Ætli við höfum ekki bæði verið smá aumingjar.
Allavegana að þá er hún núna í Þýskalandi og ég bý í Svíþjóð. Fyrst að þá sendum við hvort öðru sms og svona en svo að þá er ég ekki með neina inneign á símanum mínum og hún sendir ekkert. Hún hringdi reyndar um daginn í símann minn og sagðist ætla að senda mér bréf en þetta var fyrir 5 vikum og það er ekkert bréf komið. Kanski skrifaði hún vitlausa adressu. Ég kíki í póstkassann á hverjum degi og núna er ég að íhuga að senda henni bara bréf því að ég sakna hennar ótrúlega mikið :'(

Kv. StingerS